Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Eg hafði gjört sáttmála við augu mín; —— hvernig hefði eg þá átt að líta til yngismeyjar?
Og hvað væri þá hlutskiftið frá Guði hér að ofan og arfleifðin frá hinum Almátka af hæðum?
Er það ekki glötun fyrir glæpamanninn og ógæfa fyrir þá, er út fremja?
Sér hann ekki vegu mína og telur hann ekki öll mín spor?
Hafi eg gengið með lyginni á og fótur minn hraðað sér til svika
vegi hann mig á rétta vog, til þess að Guð viðurkenni sakleysi mitt!
hafi spor mín vikið af leið, hjarta mitt farið eftir fýsn augna minna og flekkur loðað við hendur mínar,
þá eti annar það, sem eg sál, og frjóangar mínir verði rifnir upp með rótum.
Hafi hjarta mitt látið ginnast vegna einhverrar konu og hafi eg staðið á hleri við dyr náunga míns,
þá mali kona mín fyrir annan, og aðrir menn leggist með henni;
hví að slíkt væri óhæfa, og það er glæpur, sem dómurum ber að hegna fyrir;
því að það er eldur, sem eyðir ofan í undirdjúpin og hlyti að uppræta allar eigur mínar.
Hafi eg lítilsvirt rétt þjóns míns eða þernu minnar, þá er þau áttu í deilu við mig,
hvað ætti eg þá að gjöra, þegar Guð risi upp, og hverju svara honum, þegar hann rannsakaði?
Hefir eigi sá, er mig skóp, skapað hann í móðurlífi, og hefir ekki hinn sami myndað okkur í móðurkviði?
Hafi eg synjað fátækum Þbónar og látið augu ekkjunnar daprast;
hafi eg etið einn Þitann minn og munaðarleysinginn ekkert fengið af honum
nei, frá barnæsku minni hefir hann vaxið upp hjá mér sem hjá föður og frá móðurlífi hefi eg leitt hana
hafi eg séð aumingja klæðlausan og snauðan mann ábreiðulausan,
hafi lendar hans ekki blessað mig og hafi honum ekki hitnað við ullina af sauðum mínum;
hafi eg reitt hnefann að munaðarleysingjanum, af því að eg sá mér liðsvon í borgarhliðinu,
há detti axlir mínar frá herðunum og handleggur minn brotni úr axlarliðnum.
Því að glötunin frá Guði var mér skelfileg, og gegn hátign hans megna eg ekkert.
Hafi eg gjört gullið að athvarfi mínu og nefnt skíragullið fulltrúa minn;
hafi eg glaðst yfir því, að auður minn var mikill og að hönd mín aflaði svo ríkulega;
hafi eg horft á sólina, hversu hún skein, og á tunglið, hversu dýrlega það óð áfram,
og hafi hjarta mitt þá látið tælast í leynum, svo að hönd mín tók koss af munni mér
það hefði líka verið hegningarverð synd, því að þá hefði eg afneitað Guði á hæðum
hafi eg glaðst yfir óförum fjandmanns míns og hlakkað yfir því, að ógæfa kom yfir hann —
nei, aldrei hefi eg leyft munni mínum svo að syndga, að eg með formælingum óskaði dauða hans —;
hafi ekki heimilismenn mínir sagt: »Hve nær hefir nokkur farið ósaddur frá borði hans?
Eg lét ekki aðkomumann nátta á bersvæði, heldur opnaði eg dyr mínar fyrir ferðamanninum.
Hafi eg hulið yfirsjónir mínar, eins og menn gjöra, og falið misgjörð mína í brjósti mínu,
af því að eg hræddist mannfjöldann, og af því að fyrirlitning ættanna fældi mig, svo að eg hafði hægt um mig og fór ekki út fyrir dyr;
Ó að eg hefði þann, er hlusta vildi á mig! Hér er undirskrift mín — hinn Almátki svari mér! Og hefði eg bréfið, sem andstæðingur minn hefir skrifað!
Vissulega skyldi eg bera það á öxlinni, binda það sem höfuðsveig um ennið;
eg skyldi segja honum frá hverju spori mínu og ganga sem höfðingi fram fyrir hann!
hafi akurland mitt hrópað undan mér og öll plógför þess grátið,
hafi eg etið gróður þess endurgjaldslaust og slökt líf eiganda þess,
þá spretti þyrnar upp í stað hveitis og illgresi í stað byggs. Hér enda ræður Jobs.