Jobsbók 30Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 30

En nú hlæja þeir að mér, sem yngri eru en eg; mundi eg þó ekki hafa virt feður þeirra þess, að setja þá hjá fjárhundum mínum.

Hvað hefði og kraftur handa þeirra stoðað mig, þar sem þeir aldrei verða fullþroska?

Þeir eru örmagna af skorti og hungri, naga þurt landið, sem í gær var auðn og eyðimörk;

þeir reita hrímblöðku hjá runnunum, og gýfilrætur er fæða þeirra.

Þeir eru flæmdir úr félagi manna, menn æpa að þeim, eins og að þjóf,

svo að þeir verða að hafast við í hræðilegum gjám, í jarðholum og berghellum.

Milli runnanna rymja þeir og undir netlunum safnast þeir saman,

guðlaust og ærulaust kyn, útreknir úr landinu.

Og nú er eg orðinn þeim að háðkvæði og orðinn umtalsefni þeirra.

Þeir hafa andstygð á mér, koma ekki nærri mér og hlífast jafnvel ekki við að hrækja framan í mig.

Hann hefir leyst streng sinn og beygt mig; þá sleppa þeir og beizlinu fram af sér gagnvart mér.

Mér til hægri handar vex hyski þeirra upp, fótum mínum hrinda þeir frá sér og leggja glötunarbrautir sínar gegn mér.

Þeir hafa rifið upp stig minn; að falli mínu styðja þeir, sem engan hjálparmann eiga.

Þeir koma sem inn um vítt múrskarð, velta sér áfram innan um rústir.

Skelfingar hafa snúist móti mér; tign mín er ofsótt eins og af stormi og gæfa mín er horfin eins og ský.

Og nú rennur sála mín sundur í tárum, eymdardagar halda mér föstum,

Nóttin nístir bein mín, svo að þau losna frá mér, og hinar nagandi kvalir mínar hvílast ekki.

Fyrir mikilleik máttar hans er klæðnaður minn aflagaður; hann lykur fast um mig, eins og hálsmál kyrtils míns.

Hann hefir kastað mér ofan í saurinn, svo að eg er orðinn eins og mold og aska.

Eg hrópa til þín, en þú svarar ekki; eg stend þarna, en þú starir á mig.

Þú ert orðinn grimmur við mig; með krafti handar þinnar ofsækir þú mig.

Þú lyftir mér upp á vindinn, lætur mig þeytast áfram, og þú lætur mig farast í stormgný.

Því að eg veit, að þú vilt leiða mig til heljar, í samkomuhús alls þess, er lifir.

En —- rétta menn ekki út höndina, þegar alt hrynur? eða hrópa menn ekki á hjálp, þegar þeir eru að farast?

Eða grét eg ekki yfir þeim, sem átti illa daga, og brygðist ekki sál mín vegna fátæklingsins?

Já, eg bjóst við góðu, en þá kom út, vænti ljóss, en þá kom myrkur.

Það sýður í innýflum mínum án afláts, eymdardagar eru yfir mig komnir.

Svartur geng eg um, þó ekki af sólarhita, eg stend upp, í söfnuðinum hrópa eg á hjálp.

Eg er orðinn bróðir sjakalanna og félagi strútsfuglanna.

Hörund mitt er orðið svart og flagnar af mér, og bein mín eru brunnin af hita.

Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini.