Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:
svo sannarlega sem Guð lifir, sá er svift hefir mig rétti mínum, og hinn Almátki, er hrygt hefir sálu mína:
meðan lífsönd er í mér og andi Guðs í nösum mínum,
skulu varir mínar ekki tala ranglæti og tunga mín ekki mæla svik.
Fjarri sé mér að játa, að þér hafið rétt að mæla; þar til er eg gef upp andann, læt eg ekki taka frá mér sakleysi mitt.
Eg held fast í réttlæti mitt og sleppi því ekki; hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn daga minna.
Fyrir óvini mínum fari eins og hinum óguðlega og fyrir mótstöðumanni mínum eins og hinum rangláta.
Því að: hvaða von hefir guðlaus maður, þegar skorið er á þráðinn, þá er Guð dregur út sál hans?
Ætli Guð heyri óp hans, þá er neyð kemur yfir hann?
Eða getur hann haft yndi af hinum Almátka, hrópað til Guðs hve nær sem vera skal?
Eg vil fræða yður um hönd Guðs, eigi leyna því, er hinn Almátki hefir í hyggju.
Sjá, þér hafið allir séð það sjálfir, hví farið þér þá með slíka heimsku?
Þetta er hlutskifti óguðlegs manns hjá Guði, arfleifð ofbeldismanna, sú er þeir fá frá hinum Almátka:
eignist hann mörg börn, þá er það handa sverðinu, og afkvæmi hans mettast eigi af brauði.
Þeir af fólki hans, er af komast, verða jarðaðir af drepsóttinni, og ekkjur þeirra halda engan harmagrát.
Þegar hann hrúgar saman silfri eins og sandi og hleður samam klæðum sem leir,
þá hleður hann þeim saman, en hinn réttláti klæðist þeim, og silfrinu deilir hinn saklausi.
Hann hefir bygt hús sitt eins og köngulló og svo sem skála, er varðmaður reisir sér.
Ríkur leyst hann til hvíldar — hann gjörir það eigi oftar, hann lýkur upp augunum, og þá er alt farið.
Skelfingar ná honum eins og vatnaflaumur, um nótt hrífur stormurinn hann burt.
Austanvindurinn hefir hann á loft, svo að hann þýtur áfram, og feykir honum burt af stað hans.
Vægðarlaust sendir hann skeyti sín á hann, fyrir hendi hans flýr hann í skyndi
þá skella menn saman lófum yfir honum og blístra hann burt frá bústað hans.