Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.
járn er tekið úr jörðu og steinn er bræddur að eiri.
Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til yztu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.
Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdir af mannafótum, fjarlægir mönnum hanga þeir, svífa þeir:
Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.
Safírinn finst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá, er grefur.
Örninn þekkir eigi veginn þangað og valsaugað sér hann ekki;
Shin drembnu rándýr ganga hann eigi,, ekkert ljón fer hann.
Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.
Hann heggur göng í björgin og auga hans sér alls konar dýrindi.
Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.
En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á vizkan heima?
Enginn maður þekkir veginn til hennar og hana er ekki að finna á landi lfenda.
Sjávardjúpið segir: »Í mér er hún ekki!«
og hafið segir: »Ekki er hún hjá mér!« Hún fæst ekki fyrir skíragull og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.
Eigi verður hún Ófír-gulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.
Gull og gler kemst ekki til jafns við hana og hún fæst ekki í skiftum fyrir ker af skíragulli.
Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.
Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.
Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á vizkan heima?
Hún er falin augum allra þeirra, er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.
Undirdjúpin og dauðinn segja: »Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið«.
Guð veit veginn til hennar og hann þekkir heimkynni hennar.
Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur alt, sem undir himninum er.
Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,
þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,
þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.
Og við manninn sagði hann: »Sjá, að óttast Drottin — það er speki, og að forðast út — það er vizka«.