Jobsbók 26Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 26

Þá svaraði Job og sagði:

En hvað þú hefir hjálpað hinum þróttlausa, stutt hinn máttvana armlegg!

Ben hvað þú hefir ráðið hinum óvitra og kunngjört mikla speki!

Fyrir hverjum hefir þú flutt ræðu þína, og hvers andi var það, sem gekk fram úr þér?

Vofurnar skelfast undir vötnunum og íbúum þeirra.

Naktir liggja undirheimar fyrir honum og undirdjúpin skýlulaus.

Hann þenur norðrið út yfir auðninni og lætur jörðina svífa í tómum geimnum,

hann bindur vatnið saman í skýjum sínum, og þó brestur skýflókinn ekki undir því;

hann byrgir fyrir ásjónu hásætis síns með því að breiða ský sitt yfir hana.

Marklínu hefir hann dregið hringinn í kring á haffletinum, þar sem mætast ljós og myrkur.

Stoðir himinsins nötra og hræðast ógnun hans.

Með mætti sínum æsir hann hafið og með hyggindum sínum sundurmolar hann hafdrekann.

Fyrir andgusti hans verður himininn heiður, hönd hans leggur í gegn hinn flughraða dreka,

Sjá, þetta eru að eins yztu takmörk vega hans, og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum! En þrumu máttarverka hans — hver skilur hana?