Jobsbók 25Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 25

Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

Hans er drottinvald og ótti, hann sem semur frið í hæðum sínum.

Verður tölu komið á hersveitir hans, og yfir hverjum upp rennur ekki ljós hans?

Hvernig ætti maðurinn þá að vera réttlátur hjá Guði, og hvernig ætti sá að vera hreinn, sem af konu er fæddur?

Sjá, jafnvel tunglið, það er ekki bjart, og stjörnurnar eru ekki hreinar í augum hans;

hvað þá maðurinn, maðkurinn, og mannsins sonur, ormurinn!