Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði: tn
Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, sjálfum sér vinnur vitur maður gagn.
Er það ábati fyrir hinn Almátka, að þú ert réttlátur, eða ávinningur, að þú lifir grandvöru lífi?
Er það vegna guðsótta þíns, að hann refsar þér, að hann dregur þig fyrir dóm?
Er ekki vonzka þín mikil og misgjörðir þínar óþrjótandi?
Því að þú tókst veð af bræðrum þínum að ástæðulausu og færðir fáklædda menn úr flíkum þeirra.
Þú gafst ekki hinum örmagna vatn að drekka, og hinum hungraða synjaðir þú brauðs.
En hnefa-maðurinn, — hann átti landið, og virðingarmaðurinn bjó í því.
Ekkjur lézt þú fara burt tómhentar, og armleggir munaðarleysingjanna voru brotnir sundur.
Fyrir því eru snörur alt í kring En og fyrir því skelfir ótti þig skyndilega!
Eða sér þú ekki myrkrið og vatnaflauminn, sem hylur þig?
Er ekki Guð himinhár? og lít þú á hvirfil stjarnanna, hve hátt þær gnæfa!
Og þú segir: »Hvað veit Guð? Getur hann dæmt gegnum skýsortann?
Skýin skyggja á hann, svo að hann sér ekki, og hann gengur á himinhvelfingunni.
Ætlar þú að halda fortíðar leið, þá er ranglátir menn hafa farið?
Þeir er kipt var burt fyrir tímann og grundvöllur þeirra skolaðist burt sem straumur,
þeir er sögðu við Guð: »Vík frá oss!« og hvað gæti hinn Almátki gjört fyrir þá?
Og þó fylti hann hús þeirra blessun — hugarfar óguðlegra er fjarri mér!
Hinir réttlátu sjá það og gleðjast, og hinn saklausi gjörir gys að þeim:
Vissulega er andstæðingur vor að engu orðinn og eldurinn hefir eytt leifum þeirra.
Vingast þú við hann, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma.
Tak á móti kenning af munni hans og fest þér orð hans í hjarta.
Ef þú snýr þér til hins Almátka, auðmýkir þig, ef þú rekur ranglætið langt burt frá tjaldi þínu
já, varpaðu gullinu í duftið og Ófir-gullinu ofan í lækjamölina!
þá skal hinn Almátki vera gull þitt, vera þér hið skærasta silfur.
eJá, þá munt þú hafa yndi af hinum Almátka og lyfta augliti þínu til Guðs.
Biðjir þú til hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða.
Og áformir þú eitthvað, mun þér hepnast það og birta skína yfir vegu þína.
Þegar þeir liggja niður á við, þá kallar þú: upp á við! og hinum auðmjúka hjálpar hann.
Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna.