Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Job og sagði:
Enn sem fyr munu kveinstafir mínir verða taldir uppreisn; hönd hans hvílir þungt á andvörpum mínum.
Eg vildi að eg vissi, hvernig eg ætti að finna hann, hvernig eg gæti komist fram fyrir dómstól hans!
Þá mundi eg útskýra málið fyrir honum og fylla munn minn sönnunum.
Eg mundi fá að vita, hverju hann svaraði mér, og heyra hvað hann segði við mig.
Mundi hann deila við mig í mikilleik máttar síns? Nei, hann mundi aðeins veita mér athygli.
Þá mundi hreinskilinn maður þreyta málsókn við hann, og eg mundi að eilífu losna við dómara minn.
En — fari eg í austur, þá er hann þar ekki, og í vestur — verð eg hans eigi var.
Þótt hann hafist að í norðri, þá sé eg hann ekki, og sveigi hann á leið til suðurs, fæ eg ekki litið hann.
Því að hann veit, hvernig breytni mín hefir verið, ef hann prófaði mig, mundi eg reynast sem gull.
Fótur minn hefir þrætt spor hans, eg hefi haldið veg hans og eigi hneigt af leið.
Frá skipun vara hans hefi eg ekki vikið, hefi varðveitt í brjósti mér orð munns hans.
En hann er samur við sig — hver aftrar honum? Sál hans girnist það, og hann gjörir það.
Já, hann framkvæmir það, er hann hefir ætlað mér, og mörgu slíku býr hann yfir.
Þess vegna skelfist eg auglit hans; hugleiði eg það, hræðist eg hann.
Já, Guð hefir gjört mig hugdeigan og hinn Almátki skotið mér skelk í bringu.
Því að það er ekki vegna ógæfunnar, að eg stend örþrota, né vegna sjálfs mín, þótt niðdimman hylji mig.