Jobsbók 21Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 21

Þá svaraði Job og sagði:

Hlustið gaumgæfilega á mál mitt og látið það vera huggun af yðar hendi.

Unnið mér þess, að eg tali, og þegar eg hefi talað út, þá mátt þú hæða.

Er eg þá að kvarta yfir mönnum? eða hví skyldi eg ekki vera óþolinmóður?

Lítið til mín og undrist og leggið hönd á munn!

Já, þegar eg hugsa um það, skelfist eg, og hryllingur fer um mig allan.

hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já, magnast að krafti?

SNiðjar þeirra dafna fyrir augliti þeirra hjá þeim og afsprengi þeirra fyrir augum þeirra.

Hús þeirra eru óhult og óttalaus, og hirtingarvöndur Guðs kemur ekki niður á þeim.

Boli hans kelfir og kemur að gagni, kýr hans ber og lætur ekki kálfi.

Þeir hleypa út börnum sínum eins og lambahjörð og smásveinar þeirra hoppa og leika sér.

Þeir syngja hátt undir með bumbum og gígjum og gleðjast við hljóm hjarðpípunnar.

Þeir eyða dögum sínum í velgengni og fara til heljar í friði;

og þó sögðu þeir við Guð: vík frá oss — að þekkja þína vegu girnumst vér eigi.

Hvað er hinn Almátki, að vér skyldum dýrka hann, og hvað skyldi það stoða oss, að leita hans í bæn?

Sjá, gæfa þeirra er ekki á þeirra valdi — ráðlag óguðlegra er fjarri mér.

Hversu oft sloknar þá á lampa hinna óguðlegu og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Hann hlutskiftum í reiði sinni.

Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?

Guð geymir börnum hans óhamingju hans. Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna

Sjái augu sjálfs hans glötun hans lá því! og drekki hann sjálfur af reiði hins Almátka!

Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?

Ætla menn að kenna Guði vizku, honum, sem dæmir hina himnesku?

Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður;

trog hans eru full af mjólk og mergurinn í beinum hans er safamikill.

Og annar deyr með Þbeiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.

Þeir hvíla báðir í duftinu og maðkarnir hylja þá.

Sjá, eg þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.

Þegar þér segið: »Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?«

hafið þér þá ekki spurt vegfarendur — og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna —,

að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.

Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?

Og til grafar er hann borinn og vakað yfir legstaðnum.

Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og Óteljandi eru á undan honum farnir.

Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar — sviksemin ein er eftir!