Jobsbók 20Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 20

Þá svaraði Zófar frá Naama og sagði:

Fyrir því veita hugsanir mínar mér andsvör, og af því að það sýður í mér:

eg verð að hlusta á háðulegar ávítur, og andinn svarar mér af viti sínu.

Veizt þú, að svo hefir það verið frá eilifð, frá því er menn voru settir á jörðina,

Það fögnuður óguðlegra er skammær og að gleði guðlausra varir aðeins augnablik?

Þó að sjálfbirgingskapur hans nemi við himin og höfuð hans nái upp í skýin,

þá verður hann þó eiliflega að engu, eins og hans eigin saur, þeir, sem sáu hann, segja: hvar er hann?

Hann líður burt eins og draumur, svo að hann finst ekki, og hverfur eins og nætursýn.

Augað, sem á hann horfði, sér hann eigi aftur, og bústaður hans lítur hann aldrei framar.

Börn hans sníkja á snauða menn og hendur hans skila aftur eigum hans.

Þótt bein hans séu full af æskuþrótti, hann leyst þó með honum í moldu.

Þótt hið illa sé honum sætt í munni, þótt hann feli það undir tungu sinni,

bók hann treini sér það og vilji ekki sleppa því og haldi því eftir í miðjum gómnum:

þá breytist þó fæðan í innýflum hans, — í nöðrugall í kviði honum.

Auð gleypti hann — hann verður að æla honum aftur, Guð rekur hann úr maga hans.

Nöðrueitur saug hann, tunga eiturormsins deyðir hann.

Hann má ekki gleðjast yfir lækjum, yfir rennandi ám hunangs og rjóma.

Hann lætur af hendi aflaféð og gleypir það eigi, auðurinn, sem hann græddi, veitir honum eigi eftirvænta gleði.

Því að hann kúgaði snauða og lét þá eftir hjálparlausa, sölsaði undir sig hús, en fær eigi gjört við það.

Því að hann þekti enga ró í maga sínum; • þó fær hann eigi forðað því, sem honum er dýrmætast.

Ekkert komst undan græðgi hans, fyrir því er velsæld hans eigi varanleg.

Þótt hann hafi alls nægtir, kemst hann í nauðir, alt magn mæðunnar kemur yfir hann.

Þá verður það: til þess að fylla kvið hans sendir hann í hann sína brennandi reiði og lætur mat sínum rigna yfir hann.

Þlýi hann fyrir járnvopnunum, þá borar eirboginn hann í gegn.

Hann dregur það út, þá kemur það út um bakið og hinn blikandi oddur kemur út úr galli hans — skelfing grípur hann.

Allur ófarnaður er geymdur auðæfum hans, eldur, sem enginn blæs að, eyðir honum; hann etur það, sem eftir er í tjaldi hans.

Himininn afhjúpar misgjörð hans og jörðin gjörir uppreisn í móti honum.

Gróði húss hans fer í útlegð, rennur burt í allar áttir á degi reiði hans.

Þetta er óguðlegs manns hlutskifti frá Guði og arfleifð sú, sem honum er úthlutuð af hinum Almátka.