Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Job og sagði:
Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?
Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.
Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá verður ávirðing mín hjá mér.
Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.
Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.
Sjá, eg kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar; eg kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.
Hann hefir girt fyrir veg minn, svo að eg kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.
Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.
Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að eg fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.
Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.
Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og selja herbúðir sínar kring um tjald mitt.
Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, E og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.
Skyldmenni mín láta ekki sjá sig og kunningjar mínir hafa gleymt mér.
Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og eg er orðinn útlendingur í augum þeirra.
Kalli eg á þjón minn, svarar hann ekki, á eg verð að sárbæna hann með munni mínum.
Andi minn er konu minni viðbjóðslegur og fýlan fram úr mér skilgetnum bræðrum mínum.
Jafnvel börnin fyrirlíta mig; standi eg upp, spotta þau mig.
BAlla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir, sem eg elskaði, hafa snúist á móti mér.
Bein mín límast við hörund mitt og hold, og eg kemst undan með húð tanna minna eina.
Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.
Hví ofsækið þér mig, eins og Guð, og verðið eigi saddir á holdi mínu?
að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók,
með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!
En eg veit að lausnari minn lifir og hann mun síðastur ganga fram á Foldu.
Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og alt hold er af mér, mun eg líta Guð.
Eg mun líta hann mér til góðs; já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, — hjartað brennur af þrá í brjósti mér!
Þegar þér nú segið: »Hvað vér skulum ofsækja hann!« og rót málsins sé að finna hjá mér,
þá hræðist sverðið — því að slíkt eru sverðs-misgjörðir — svo að þér viðurkennið, að til sé dómur.