Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:
Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessari orðaveiði? Látið yður segjast; og því næst skulum vér talast við.
Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?
Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, — á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?
Ljós hinna óguðlegu sloknar að vísu og logi elds hans skín ekki.
Ljósið myrkvast í tjaldi hans og það sloknar á lampanum yfir honum.
Hans öflugu skref verða stutt og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,
því að hann rekst í netið með fætur sína og hann gengur í veiðineti.
Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.
Snaran liggur falin fyrir hann á jörðunni og gildran fyrir hann á stígnum.
Skelfingar hræða hann alt um kring og hrekja hann áfram hvar sem hann gengur.
Óhamingju hans tekur að svengja og glötunin bíður búin eftir falli hans.
Limi líkama hans etur — limu hans etur frumburður dauðans.
Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.
tjaldi hans byr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.
Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.
Minning hans hverfur af jörðunni. og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.
Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.
Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.
Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir og hrylling grípur þá, er fyr voru uppi.
Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.