Jesajabók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 9

En eigi skal myrkur vera í landi því, sem nú er í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og Naftalíland, en síðar meir mun hann varpa frægð yfir leiðina til hafsins, landið hinumegin Jórdanar og hérað heiðingjanna.

Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós; yfir þá, sem búa í landi náttmyrkranna, skín ljós.

Þú eykur stórum fögnuðinn, þú gjörir gleðina mikla; menn gleðja sig fyrir þínu augliti, eins og þegar menn gleðjast á kornskurðartímanum, eins og menn leika af fögnuði þegar herfangi er skítt.

Því að hið þunga ok hennar, stafinn, sem reið að herðum hennar, brodd rekstrarmannsins, hefir þú í sundur brotið, eins og á degi Midíans.

Því að öll harkmikil hermannastígvél og allar blóðstoknar skikkjur skulu brendar og verða eldsmatur.

Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn; á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla; nafn hans skal kallað: undraráðgjafi, guðhetja, eilifðarfaðir,

Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í konungsríki hans, til þess að reisa það og efla með réttvísi og réttlæti héðan í frá og að eilífu. Vandlæting Drottins hersveitanna mun þessu til vegar koma.

Drottinn hefir sent orð gegn Jakob, og því lýstur niður í Ísrael.

Og öll þjóðin skal verða þess áskynja, bæði Efraím og Samaríubúar, sem af metnaði og stærilæti hjartans segja:

Tigulsteinarnir eru hrundir, en vér skulum byggja upp aftur af högnu grjóti; mórberjatrén eru feld, en vér skulum setja sedrustré í staðinn.

Þess vegna mun Drottinn efla mótstöðumenn Rezíns á hendur þeim og vopna óvini þeirra,

Sýrlendinga að austan og Filista að vestan, og þeir skulu svelgja Ísrael með gapandi gini. Alt fyrir það linti ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.

En þjóðin sneri sér ekki til hans, sem laust hana, og Drottins hersveitanna leituðu þeir ekki.

Þess vegna mun Drottinn höggva höfuð og hala af Ísrael, pálmakvistinn og sefstráið á sama degi. —

Öldungarnir og virðingamennirnir eru höfuðið, spámenn þeir, er kenna lygar, eru halinn. —

Því að leiðtogar þessa fólks leiða það afleiðis, og þeir, sem láta leiða sig, tortímast.

Fyrir því hefir Drottinn enga gleði af æskumönnum þess og enga meðaumkun með munaðarleysingjum þess og ekkjum; því að allir eru þeir guðleysingjar og illvirkjar, og hver munnur mælir heimsku. Alt fyrir þetta linti ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.

Því að hið óguðlega athæfi brennur eins og eldur, eyðir þyrnum og þistlum og kveikir í þykkum skógarrunnum, svo að þeir hvirflast upp í reykjarmökk.

Vegna reiði Drottins hersveitanna stendur landið í björtu báli og fólkið verður sem eldsmatur; enginn þyrmir öðrum.

Menn rífa í sig til hægri handar og eru þó hungraðir; þeir eta til vinstri handar og verða þó eigi saddir; hver etur holdið af sínum eigin armleggi.

Manasse Efraím og Efraím Manasse; báðir saman ráða þeir á Júda. Alt fyrir þetta linnir ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.