Gamla testamentiðSpámennirnir
Vei þeim, sem veita ranga úrskurði og færa skaðsemdar-ákvæði í letur,
til þess að halla rétti fátækra og ræna lögum hina Mauðstöddu á meðal fólks míns, til þess að ekkjurnar verði þeim að herfangi og þeir fái féflett munaðarleysingjana.
Hvað ætlið þér að gjöra á degi hegningarinnar og þegar eyðingin kemur úr fjarska? Til hvers viljið þér þá flýja um ásjá? og hvar viljið þér geyma auðæfi yðar?
Er nokkuð annað fyrir hendi en að falla á kné meðal hinna fjötruðu eða hníga meðal hinna vegnu? Alt fyrir þetta linnir ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.
Vei Assúr, vendinum reiði minnar! Heift mín er stafurinn í höndum þeirra.
Eg sendi hann móti guðlausti þjóð; eg býð honum að fara á móti lýðnum, sem eg er reiður, til þess að ræna og rupla og troða hann fótum sem saur á strætum.
En hann skilur það eigi svo og hjarta hans hugsar eigi svo; heldur girnist hann að eyða og uppræta margar þjóðir.
Því að hann segir: »Eru ekki höfðingjar mínir allir saman konungar?
Fór ekki fyrir Kalne eins og fyrir Karkemis? fyrir Hamat eins og fyrir Arpad? fyrir Samaríu eins og fyrir Damaskus?
Eins og hönd mín náði til konungsríkja guðanna, og voru þó líkneskjur þeirra fleiri en Jerúsalem og Samaríu,
já, eins og eg hefi farið með Samaríu og guði hennar, svo mun eg fara með Jerúsalem og guðalíkneski hennar!«
En þegar Drottinn hefir lokið öllu starfi sínu á Zíon-fjalli og í Jerúsalem, mun eg vitja ávaxtarins af ofmetnaðinum í hjarta Assýríu-konungs og hins hrokafulla drembilætis augna hans;
því að hann hefir sagt: með styrk handar minnar hefi eg þessu til leiðar komið, og með hyggindum mínum, því að eg er vitsmunamaður. Eg hefi fært úr stað landamerki þjóðanna, rænt fjárhlutum þeirra og sem alvaldur steypt afstóli drotnendum þeirra.
Hönd mín náði í fjárafla þjóðanna, sem fuglshreiður væri; og eins og menn salha eggjum, sem fuglinn er íloginn af, svo hefi eg safnað saman öllum löndum, og hefir enginn blakað vængjum, lokið upp nefinu né tíst«.
Hvort má öxin dramba í gegn þeim, sem höggur með henni, eða sögin miklast í gegn þeim, sem sagar með henni? Alt eins og sprotinn ætlaði að sveifla þeim, er reiðir hann, eða stafurinn færa á loft þann, sem ekki er af tré.
Fyrir því mun Drottinn, Drottinn hersveitanna, senda megrun í fitu hans, og undir dýrð hans mun eldur blossa upp sem brennandi bál.
Og ljós Ísraels mun verða að eldi og hinn Heilagi í Ísrael að loga, og sá logi skal á einum degi uppbrenna og eyða þyrnum hans og þistlum
og afmá að fullu og öllu hina dýrlegu skóga hans og aldingarða; hann skal verða eins og sjúklingur, sem veslast upp.
Og leifarnar af skógartrjám hans munu verða teljandi og smásveinn mun geta skrifað þau upp.
Á þeim degi skulu leifarnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi, sem af komast, eigi framar reiða sig á þann, sem sló þá, heldur munu þeir með trúfesti reiða sig á Drottin, hinn heilaga í Ísrael.
Leifar munu aftur hverfa, leifarnar af Jakob, til hins máttuga Guðs.
Því að þótt fólksfjöldi þinn, Ísrael, væri sem sjávarsandur, skulu þó aðeins leifar af honum aftur hverfa. Eyðing er fastráðin, framveltandi flóð réttlætis.
Því að eyðingu, og hana fastráðna, mun Drottinn, Drottinn hersveitanna framkvæma á jörðinni miðri.
Fyrir því segir Drottinn, Drottinn hersveitanna, svo: Þú þjóð mín, sem býr á Zíon, óttast þú eigi Assúr, er hann slær þig með sprota og reiðir að þér staf sinn, eins og Egiptar gjörðu.
BÞví að eftir skamma hríð er reiðin á enda, og þá beinist heift mín að eyðing þeirra.
Þá reiðir Drottinn hersveitanna svipuna að þeim, eins og þegar hann laust Midíansmenn hjá Óreb-kletti og stafur hans er útréttur yfir hafið, og hann færir hann á loft, eins og gey Egiptum forðum.
Á þeim degi skal byrði sú, sem hann hefir á þig lagt, falla af herðum þér og ok hans af hálsi þínum, og okið skal brotna fyrir ofurfitu,
Hann heldur til Ajat, fer um Migron og lætur eftir faraugU! sinn í Mikmas.
Þeir fara yfir skarðið; þeir hafa náttból í Geba, Ramð skelfist, Gíbea Sáls leggur á flótta.
Hljóða þú upp, Gallím-dóttir! hlustaðu á, Laísa! taktu undir, Anatót!
Madmena flýr, íbúar Gebím forða sér undan.
Þennan sama dag æir hann í Nób; hann réttir út hönd sína móti fjalli Zion-dóttur, móti hæð Jerúsalemborgar.
Sjá, þá afsníður Drottinn, Drottinn hersveitanna, laufkrónuna voveiflega; hin hávöxnu trén eru höggvin og hin gnæfandi hníga til jarðar.
Hann ryður skógarrunnana með exi, og Lfbanon fellur fyrir hinum volduga.