Jesajabók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 8

Og Drottinn sagði við mig: Tak þér stórt spjald og rita þú á það með algengu letri: Til Maher-sjalal Kas-basan.

Ogtak mér skilríka votta, prestinn Úría og Sakaría Jeberekíason.

Og eg nálgaðist spákonuna, og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: Lát þú hann heila Maher-sjalal Kas-has.

Því að áður en sveinninn lærir að kalla »faðir minn« og »móðir mín«, skal auður Damaskus og herfang Samaríu burt flutt verða fram fyrir Assýríu-konung.

Og Drottinn talaði enn við mig og sagði:

Af því að þessi lýður fyrirlítur irlílur hin straumhægu Sílóa-vötn, en fagnar Rezín og Remaljasyni,

sjá, fyrir því mun Drottinn láta yfir þá koma hin stríðu og miklu vötn fljótsins — Assýríu-konung og alt hans einvalalið —; skal það ganga upp yfir alla farvegu sína og flóa yfir alla bakka.

Og það skal brjótast inn í Júda, flæða þar yfir og geysast áfram, þar til manni tekur undir höku, og breiða vængi sína yfir alt þitt land, eins og það er vitt til, Immanúel!

Vitið það, lýðir, og hlustið á, allar fjarlægar landsálfur! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast!

Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því að Guð er með á oss!

Því að svo mælti Drottinn við mig, þá er hönd hans hreif mig og hann varaði mig við því að ganga sama veg og þetta fólk gengur:

»Þér skuluð ekki kalla heilagt alt það, sem þetta fólk kallar heilagt, og ekki óttast það, sem það óttast, og eigi skelfast.

Drottinn hersveitanna, hann skuluð þér telja heilagan, hann sé yður ótti, hann sé yður skelfing.

Og hann skal verða helgidómur og ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir báðar ættþjóðir Ísraels og snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.

Og margir af þeim munu hrasa, falla og meiðast, festast í snörunni og verða veiddir.

Bind þú saman vitnisburðinn og innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum«.

Eg treysti Drottni, þótt hann byrgi nú auglit sitt fyrir Jakobs niðjum, og eg bið hans.

Sjá, eg og synirnir, sem Drottinn hefir gefið mér, vér erum til tákns og jarteina í Ísrael frá Drottni hersveitanna, sem býr á Zíon-fjalli.

Og ef þeir segja við yður: Leitið frétta hjá þjónustuöndum og spásagnaröndum, sem hvískra og umla — á ekki tólk að leita frétta hjá Guði sínum? á að leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi?

»Leitið til kenningarinnar og vitnisburðarins!« ef þeir tala ekki samkvæmt þessu orði …. Af því að hann er án morgunroða,

mun hann ráfa þar hrjáður og hungraður. Og er hann hungrar, mun hann fyllast bræði og formæla konungi sínum og Guði sínum; hann horfir til himins

og lítur til jarðar, og sjá: þar er neyð og myrkur, í angistarsorta og niðdimmu er hann útrekinn.