Gamla testamentiðSpámennirnir
Svo bar til á dögum Akasar, konungs í Júda, Jótamssonar, Ússíasonar, að Rezín Sýrlandskonungur og Peka Remaljason, konungur í Ísrael, fóru upp til Jerúsalem til að herja á hana, en fengu ekki unnið hana.
Og húsi Davíðs kom sú fregn: Sýrland hefir gjört bandalag við Efraím. Skalf þá hjarta hans og hjarta þjóðar hans, eins og skógartré skjálfa fyrir vindi.
Þá sagði Drottinn við Jesaja: Gakk þú og Sear-Jasúb, sonur þinn, til móts við Akas, að enda vatnstokksins úr efri tjörninni, við veginn út á bleikivöllinn,
og seg við hann: Gæt þín og haf kyrt um þig; óttast þú eigi og lát eigi hugfallast fyrir þessum tveimur rjúkandi brandabrotum, fyrir brennandi reiði þeirra Rezíns, Sýrlendinga og Remaljasonar.
Sökum þess að Sýrland, Efraím og Remaljasonur hafa haft ill ráð með höndum gegn þér og sagt:
»Vér skulum fara herferð á hendur Júda og skjóta mönnum skelk í bringu, taka landið herskildi og setja Tabelsson þar til konungs«, —
þá segir Drottinn Guð: Það skal eigi takast og það skal eigi verða.
Því að Damaskus er höfuð Sýrlands og Rezín höfuð Damaskus — og áður en liðin eru sextíu og fimm ár skal Efraím gjöreytt verða og eigi verða þjóð upp frá því —
og Samaría er höfuð Efraíms og Remaljasonur höfuð Samaríu. Ef þér trúið eigi, munuð þér eigi fá staðist.
Og enn talaði Drottinn við Akas og sagði:
Bið þér tákns af Drottni, Guði þínum, hvort sem þú vilt heldur beiðast þess neðan úr undirheimum eða ofan að frá hæðum.
En Akas sagði: Eg vil einskis biðja og eigi freista Drottins.
Þá sagði hann: Heyrið, þér niðjar Davíðs, nægir yður það eigi að þreyta menn, úr því að þér þreytið einnig Guð minn.
Fyrir því mun Drottinn gefa yður tákn sjálfur: Sjá, kona verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel.
Við súrmjólk og hunang skal hann alast, þá er hann fer að hafa vit á að hafna hinu illa og velja hið góða;
því að áður en sveinninn hefir vit á að hafna hinu illa og velja hið góða, skal mannauðn verða í landi þeirra tveggja konunga, sem nú skelfa þig.
Drottinn mun láta yfir þig og yfir þjóð þína og yfir hús föður þíns þá daga koma, að ekki hafa slíkir yfir liðið síðan Efraím skildist frá Júda — Assýríukonung.
Og á þeim degi mun Drottinn blístra á flugurnar, sem eru við mynnið á Níl-kvíslunum á Egiptalandi, og á býflugurnar, sem eru í Assúrlandi;
og þær munu allar koma og setjast í dalverpin og í bergskorurnar, í alla þyrnirunna og í öll vatnsból.
Á þeim degi mun Drottinn með rakhnífi, leigðum fyrir handan fljót — með Assýríukonungi — raka höfuðið og kviðhárin, og skeggið mun hann einnig nema burt.
Og á þeim degi mun maður hafa kvígu og tvær ær,
og vegna þess, hve vel þær mjólka, mun hann hafa súrmjólk til matar; því að á súrmjólk og hunangi skal hver maður lifa, sem eftir verður í landinu.
Og á þeim degi mun svo fara, að alstaðar þar sem áður stóðu þúsund vínviðir, þúsund sikla virði, þar skulu vaxa þyrnar og þistlar.
Menn skulu ekki fara þar um, nema þeir hafi með sér örvar og boga; því að landið skal ekki annað vera en þyrnar og þistlar.
Og öll rellin, sem nú eru stungin upp með skóflu — þangað skal enginn maður koma af hræðslu við þyrna og þistla. Nautpeningi verður hleypt þangað og sauðfénaður látinn traðka þau niður.