Gamla testamentiðSpámennirnir
Árið, sem Ússía konungur andaðist, sá eg Drottin sitjandi á háum og gnæfandi veldistóli, og slóði skikkju hans fylti helgidóminn.
Umhverfis hann stóðu serafar; hafði hver þeirra sex vængi; með tveimur huldu þeir ásjónur sínar, með tveimur huldu þeir fætur sína og með tveimur flugu þeir.
Og þeir kölluðu hver til annars og sögðu: »Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn hersveitanna, öll jörðin er full af hans dýrð«.
Við raust þeirra, er þeir kölluðu, skulfu undirstöður þröskuldanna og húsið varð full af reyk.
Þá sagði eg: »Vei mér, það er úti um mig! því að eg er maður, sem hefi óhreinar varir og bý meðal fólks, sem hefir óhreinar varir, því að augu mín hafa séð konunginn, Drottinn hersveitanna«.
Einn serafanna flaug þá til mín; hann hélt á glóandi steini, sem hann hafði tekið af altarinu með töng;
hann snart munn minn með steininum og sagði: »Sjá, þessi hefir snortið varir þínar; misgjörð þín er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína«.
Þá heyrði eg raust Drottins; hann sagði: »Hvern skal eg senda? hver vill vera erindreki vor?« Og eg sagði: »Hér er eg; send þú mig!«
Og hann sagði: »Far og seg þessu fólki: Hlýðið grandgæfilega til, þér skuluð þó ekkert skilja; horfið á vandlega, þér skuluð þó einskis vísir verða!
Gjör þú hjarta þessa fólks tilfinningarlaust og eyru þess daufheyrð og afturloka augum þess, svo að þeir sjái ekki með augum sínum, heyri ekki með eyrum sínum og skilji ekki með hjarta sínu, að þeir mættu snúa sér og læknast«.
Og eg sagði: »Hversu lengi, Drottinn?« Hann svaraði: Þar til er borgirnar standa í eyði óbygðar og húsin mannlaus og landið verður gjöreytt
og Drottinn hefir rekið fólkið langt í burt og eyðistaðirnir eru margir orðnir í landinu.
Og þótt enn sé tíundi hluti eftir í því, skal hann og verða eyddur. En eins og rótarstúfur verður eftir af terpentíntrénu og eikinni, þá er þau eru feld, svo skal og stúfur þess verða heilagt sæði.