Jesajabók 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 5

L Eg vil kveða kvæði um ástvin minn, ástarkvæði um víngarð hans. Ástvinur minn átti víngarð á frjósamri hæð.

Hann stakk upp garðinn og tíndi grjótið úr honum; hann gróðursetti gæða-vínvið í honum, reisti turn í honum miðjum og hjó þar einnig út vínlagarþró; og hann vonaði að garðurinn mundi bera vínber, en hann bar muðlinga.

Og dæmið nú, þér Jerúsalembúar og Júdamenn, milli mín og víngarðs míns!

Hvað varð meira að gjört við víngarð minn en eg hafði gjört við hann? Hví bar hann muðlinga, þegar eg vonaði, að hann mundi bera vínber?

Hví bar hann muðlinga, þegar eg vonaði, að hann mundi bera vínber? En nú vil eg kunngjöra yður, hvað eg ætla að gjöra við víngarð minn: rífa þyrnigerðið, svo að hann verði etinn upp, brjóta niður múrvegginn, svo að hann verði troðinn niður.

eg vil gjöra hann að auðn; hann skal ekki verða sniðlaður og ekki stunginn upp; þar skulu vaxa þyrnar og þistlar; og skýjunum vil eg um bjóða, að þau láti enga regnskúr yfir hann drjúpa.

Því að víngarður Drottins hersveitanna er Ísraels hús, og Júdamenn ástkær plantan hans. Og hann vonaðist eftir rétti, en sjá: manndráp; eftir réttvísi, en sjá: neyðarkvein.

Vei þeim, sem bæta húsi við hús og leggja akur við akur, unz ekkert landrými er eftir og þér búið einir í landi.

Drottinn hersveitanna mælir í eyra mér: Í sannleika skulu mörg hús verða að auðn, mikil Og fögur hús verða mannlaus.

Því að tíu plóglönd í víngarði skulu Bela af sér eina skjólu, og ein tunna sæðis skeppu.

Vei þeim, sem rísa árla morguns, til þess að sækjast eftir áfengum drykk, sem sitja fram á nótt eldrauðir af víni.

Gígjur, hörpur, bumbur og hljóðpípur kveða við, og vínið flóir við samdrykkjur þeirra, en gjörðum Drottinn gefa þeir eigi gaum, og það, sem hann hefir með höndum, sjá þeir ekki.

Fyrir því mun lýður minn fyr en af veit fara í útlegð, og tignarmennirnir kveljast af hungri og svallararnir vanmegnast af þorsta.

Fyrir því vex græðgi Heljar og hún glennir ginið sem mest hún má, og skrautmenni landsins og svallarar, hávaðamennirnir og gleðimennirnir steypast niður þangað.

Og mannkind skal beygjast og maðurinn lægjast og augu dramblátra verða niðurlút.

En Drottinn hersveitanna mun háleitur verða í dóminum og hinn heilagi Guð sýna heilagleik í réttvísi.

Og lömb munu ganga þar á beit, eins og á afrétti, og hinar auðu lendur ríkismannanna munu geitur upp eta.

Vei þeim, sem draga refsinguna í böndum ranglætisins og syndagjöldin eins og í aktaugum;

þeim er segja: Flýti hann sér og hraði verki sínu, svo að vér megum sjá það; komi nú ráðagjörð hins Heilaga í Ísrael fram og rætist, svo að vér megum verða varir við.

Vei þeim, sem kalla hið illa gott og hið góða út, sem gjöra myrkur að ljósi og ljós að myrkri, sem gjöra beiskt að sætu og sætt að beisku.

Vei þeim, sem vitrir eru í augum sjálfra sín og hygnir að eigin áliti.

Vei þeim, sem kappar eru í víndrykkju og öflugar hetjur í því að byrla áfengan drykk;

þeim sem sýkna hinn seka fyrir mútur og svifta hina réttlátu rétti þeirra.

Fyrir því, eins og eldsloginn eyðir stráinu og heyið hnígur í bálið, svo skal rót þeirra fúna og blóm þeirra feykjast sem ryk, af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins hersveitanna og fyrirlitið orð hins Heilaga í Ísrael.

Þess vegna bálaðist reiði Drottins í gegn lýð hans, og hann rétti út hönd sína móti honum og laust hann; og fjöllin skulfu og líkin lágu sem sorp á strætum. Alt fyrir það linnir ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.

Og hann reisir hermerki fyrir fjarlæga þjóð og blístrar á hana frá yztu landsálfu; og sjá, hún kemur fljót og frá.

Enginn er þar móður og engum skrikar fótur, enginn blundar né tekur á sig náðir; engum þeirra losnar belti frá lendum, og ekki slitnar skóþvengur nokkurs þeirra.

Örvar þeirra eru hvestar og allir bogar þeirra bentir; hófarnir á hestum þeirra eru sem finna og vagnhjól þeirra sem vindbylur.

Óskur þeirra er sem ljónsöskur, þeir öskra sem ung ljón; þeir grenja, grípa herfangið og hafa það á burt, og enginn fær bjargað.

Á þeim degi munu þeir koma grenjandi í móti honum, eins og ólgandi brim. Hann horfir yfir landið og sjá, þar er skelfilegt myrkur og dagsbirtan er myrkvuð af dimmum skýjum.