Jesajabók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 4

Á þeim degi munu sjö konur þrífa í sama manninn og segja: »Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða; lát þú oss aðeins nefnast eftir nafni þínu, nem burt smán vora«.

Á þeim degi mun kvistur Drottins prýðilegur og veglegur verða, og ávöxtur landsins hár og fagur fyrir þá af Ísrael, sem undan komast.

Þeir, sem af lifa í Zíon og eftir verða í Jerúsalem, skulu kallast heilagir, allir þeir, sem skráðir eru meðal hinna lifandi í Jerúsalem,

þá er Drottinn hefir afþvegið óhreinindi dætra Zíonar og hreinsað blóð Jerúsalemborgar af henni með refsidóms-anda og hreinsunar-anda.

Og yfir öllum helgidóminum á Zíon-fjalli og samkomunum þar mun Drottinn skapa ský um daga, og reyk og skínandi eldsloga um nætur; því að yfir öllu því, sem dýrlegt er, skal verndarhlíf vera.

Og laufskáli skal vera þar til forsælu fyrir hitanum á daginn og til hælis og skýlis fyrir steypiregni og skúrum.