Gamla testamentiðSpámennirnir
Jví sjá, Drottinn, Drottinn hersveitanna sviftir Jerúsalem og Júda hverri stoð og styttu, allri stoð brauðs og allri stoð vatns,
hetjum og hermönnum, dómendum og spámönnum, spásagnamönnum og öldungum,
höfuðsmönnum, virðingamönnum, ráðgjöfum, hugvitsmönnum og kunnáttumönnum.
Eg vil fá þeim ungmenni fyrir höfðingja, og smásveinar skulu drotna yfir þeim.
Og á meðal fólksins skal maður manni þrengja; ungmennið mun hrokast upp í móti öldungnum og skrílmennið upp í móti tignarmanninum.
Þegar einhver þrífur í bróður sinn í húsi föður síns og segir: »Þú átt yfirhöfn, ver þú stjórnari vor, og þetta fallandi ríki skal vera undir þinni hendi,
þá mun hann á þeim degi hefja upp raust sína og segja: »Eg vil ekki vera sáralæknir; og í húsi mínu er hvorki til brauð né klæði; gjörið mig ekki að þjóðstjóra«.
Því að Jerúsalem er að hruni komin og Júda er að falla, af því að tunga þeirra og athæfi var gegn Drottni, til þess að storka dýrðaraugum hans.
Andlitssvipur þeirra vitnar í gegn þeim; og þeir gjöra syndir sínar heyrum kunnar, eins og Sódóma, og leyna þeim ekki. Vei þeim, því að þeir hafa bakað sjálfum sér ógæfu.
Heill hinum réttlátu, því að þeim mun vel vegna, því að þeir munu njóta ávaxtar verka sinna.
Vei hinum óguðlega, honum mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgjörðum hans.
Harðstjón þjóðar minnar er drengur, og konur drotna yfir henni. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis og villa fyrir þér veginn.
Drottinn gengur fram til að sækja sökina; hann stendur frammi til að dæma þjóðirnar.
Drottinn gengur fram til dóms í gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans: það eruð þér, sem etið hafið upp víngarðinn; ræntir fjármunir fátæklinganna eru í húsum yðar.
Hvernig getið þér fengið af yður að fótum troða lýð minn og merja sundur andlit hinna snauðuG segir Drottinn, Drottinn hersveitanna.
Og Drottinn sagði: Sökum þess að dætur Zionar eru drembilátar og ganga hnakkakerfar, gjóta út undan sér augunum og lifa í göngunni og láta glamra í öklaspennunum,
þá mun Drottinn gjöra kláðugan hvirfil Zíonar dætra og Drottins gjöra bera ldygðan þeirra.
Á þeim degi mun Drottinn burt nema skart þeirra: öklaspennurnar, ennisböndin, hálstinglin,
eyrnaperlurnar, armhringana, andlitsskýlurnar
motrana, Öklafestarnar, beltin, ilmbaukana, töfraþingin,
fingurgulhn, nefhringana,
glitklæðin, nærklæðin, mötlana og pyngjurnar,
speglana, líndúkana, vefjarhettina og slæðurnar.
Ög koma mun ódaunn fyrir ilm, reiptagl fyrir belti, skalli fyrir hárfléttur, aðstrengdur hærusekkur í stað skrautskikkju, brennimerki í stað fegurðar.
Menn þínir munu fyrir sverði falla og kappar þínir í orustu.
Og hlið hennar munu kveina og harma, og hún sjálf mun sitja einmana á jörðunni.