Jesajabók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 2

Orðið sem Jesaja Amozssyni vitraðist um Júda og Jerúsalem.

það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús Drottins stendur á, mun grundvallað verða á fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu allir heiðingjarnir streyma.

Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: Komið, förum upp á fjall Drottins, til húss Jakobs Guðs, svo að hann kenni oss sína vegu, og vér megum Sanga á hans stigum; því að frá Zíon mun kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem.

Og hann mun dæma meðal heiðingjanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annari þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.

Ættmenn Jakobs, komið, göngum í ljósi Drottins.

Því að þú hefir hafnað þjóð þinni, ættmönnum Jakobs, því að þeir eru allir í austurlenzkum göldrum og spáförum, eins og Filistar, og fylla landið útlendum mönnum.

Og land þeirra er fult af silfri og gulli, og fjársjóðir þeirra eru óþrjótandi; og land þeirra er fult af hestum, og vagnar þeirra eru óteljandi.

Land þeirra er full af falsguðum; þeir falla fram fyrir Eigin handaverkum sínum, fram fyrir því, sem fingur þeirra hafa gjört.

En Mannkind skal beygjast og maðurinn lægjast, og eigi munt þú fyrirSela þeim.

Gakk þú inn í bergið og fel þig í jörðu fyrir ógnum Drottins og ljóma hátignar hans.

Hin drembilegu augu mannsins skulu lægjast og hroki mannanna beygjast, og Drottinn einn skal á þeim degi háleitur vera.

Því að dagur Drottins hersveitanna kemur yfir alt það, sem dramblátt er og hrokafult, og yfir alt, er hátt gnæfir, — það skal lægjast;

og yfir öll hin hávöxnu og gnæfandi sedrustré á Líbanon, og yfir allar Basans-eikur;

og yfir öll há fjöll og allar gnæfandi hæðir;

yfir alla háreista turna og yfir alla ókleifa múrveggi;

og yfir alla Tarsis-knörru og yfir alt ginnandi glys.

Og dramblæti mannsins skal lægjast og hroki mannanna beygjast, og Drottinn einn skal á þeim degi háleitur vera.

Og falsguðirnir — það er með öllu úti um þá.

Þá munu menn smjúga inn í bjarghella og jarðholur fyrir ógnum Drottins og fyrir ljóma hátignar hans, þegar hann rís upp til þess að skelfa jörðina.

Á þeim degi munu menn kasta fyrir moldvörpur og leðurblökur silfur-goðum sínum og gull-goðum, er þeir hafa gjört sér, til að falla fram fyrir,

en skreiðast sjálfir inn í klettagjár og hamarskorur fyrir ógnum Drottins og fyrir ljóma hátignar hans, þegar hann rís upp, til þess að skelfa jörðina.

Hættið að treysta mönnum; hverfulan lífsanda hafa þeir í nösum sér; hvers virði eru þeir?