Gamla testamentiðSpámennirnir
Vitrun Jesaja Amozsonar, er hann fékk um Júda og Jerúsalem á dögum UÚssía, Jótams, Akasar og Hiskía, Júda-konunga.
Heyrið, þér himnar! og hlusta þú, jörð! því að Drottinn talar. Eg hefi fóstrað börn og fætt þau upp, og þau hafa risið í gegn mér.
uxinn þekkir eiganda sinn og asninn jötu húsbónda síns, en Ísrael þekkir ekki, mitt fólk skilur ekki.
Vei hinni syndugu þjóð, þeim lýð, sem misgjörðum er hlaðinn, afsprengi illræðismannanna, spíttum börnum! Þeir hafa yfirgefið Drottin, smáð hinn heilaga í Ísrael og snúið baki við honum.
Hvar ætlið þér að láta ljósta yður framvegis, fyrst þér haldið áfram að þverskallast? Höfuðið er alt í sárum og hjartað alt sjúkt.
SFrá hvirfli hl ilja er ekkert heilt, tómar undir, skrámur og nýjar benjar, sem hvorki er kreist úr né um bundið og þær eigi mýktar með olíu.
Land yðar er auðn, borgir yðar í eldi brendar; útlendir menn eta upp akurland yðar fyrir augum yðar, slík eyðing sem þá er land kemst í óvina hendur.
Dóttirin Zíon er ein eftir, eins og varðskáli í víngarði, eins og vökukofi í melónugarði, eins og umsetin borg.
Ef Drottinn hersveitanna hefði eigi látið oss eftir leifar, mundum vér brátt hafa orðið sem Sódóma, — líkst Gómorru!
Heyrið orð Drottins, dómarar í Sódómu, hlusta þú á kenning Guðs vors, Gómorru-lýður!
Hvað skulu mér yðar mörgu sláturfórnir? segir Drottinn. Eg er orðinn saddur á hrúta-brennifórnum og alikálfafeiti, og í uxa-, lamba- og hafra-blóð langar mig ekki.
Þegarþér komið til þess að líta auglit mitt, hver hefir þá beðið yður að láta Traðka forgarða mína?
Berið eigi lengur fram fánýtar matfórnir; þær eru mér andstyggilegur fórnarreykur. Tunglkomur, hvíldardagar, hátíðastefnur, — eg fæ eigi þolað að saman fari ranglæti og hátíðaþröng.
Sál mín hatar tunglkomur yðar og hátíðir; þær eru orðnar mér byrði; eg er þreyttur orðinn að bera þær.
Og er þér fórnið upp höndum, byrgi eg augu mín fyrir yður; og þótt þér biðjið mörgum bænum, þá heyri eg ekki; hendur yðar eru alblóðugar.
Þvoið yður; hreinsið yður, takið ilskubreytni yðar í burt frá augum mínum; látið af að gjöra út!
Lærið gott að gjöra, leitið þess, sem rétt er; hjálpið þeim, sem fyrir ofríki verður, rekið réttar hins munaðarlausa og verjið málefni ekkjunnar.
Komið nú og eigumst lög við! segir Drottinn. syndir yðar eru sem skarlat, munu þær þá geta orðið hvítar sem mjöll? Ef þær eru rauðar sem purpuri, munu þær þá geta orðið sem ull?
Ef þér eruð auðsveipir og hlýðnir, þá skuluð þér njóta landsins gæða;
en ef þér færist undan því og þverskallist, þá skuluð þér verða sverði bitnir; því að munnur Drottins hefir talað það.
Hvernig stendur á því, að hún er orðin að skækju — borgin trúfasta. Hún var full réttinda, og réttlætið hafði þar bólfestu, en nú manndrápsmenn.
Silfur þitt er orðið að sora, vín þitt vatni blandað.
Höfðingjar þínir eru uppreistarmenn og leggja lag sitt við þjófa; allir elska þeir mútu og sækjast ólmir eftir fégjöfum; þeir reka eigi réttar hins munaðarlausa, og málefni ekkjunnar fær eigi að koma fyrir þá. F
Fyrir því segir Drottinn, Drottinn hersveitanna, hinn voldugi í Ísrael: Vei, eg skal svala mér á mótstöðumönnum mínum og hefna mín á óvinum mínum.
Og eg skal rétta út hönd mína til þín og hreinsa sorann úr þér, eins og með lútösku, og skilja frá alt blýið.
Og eg skal fá þér aftur slíka dómendur sem í öndverðu, og aðra eins ráðgjafa og í upphafi. Upp frá því skalt þú kallast bær réttvísinnar, borgin trúfasta.
Zíon skal fyrir réttan dóm frelsuð verða, og þeir af íbúum hennar, sem hafa snúið sér, fyrir réttlæti.
En tortíming komi yfir alla illræðismenn og syndara; og þeir, sem yfirgefa Drottin, skulu fyrirfarast.
Því að þeir munu blygðast sín fyrir eikurnar, sem þér höfðuð mætur á, og þér munuð skammast yðar fyrir lundana, sem voru yndi yðar.
Því að þér munuð verða sem eik með visnuðu laufi, og eins og vatnslaus lundur.
Og hinn voldugi skal verða að strýi og verk hans að eldsneista, og hvorttveggja mun uppbrenna hvað með öðru, og enginn slökkva.