Gamla testamentiðSpámennirnir
Eg var fús að veita þeim áheyrn, sem eigi spurðu eftir mér, eg gaf þeim kost á að finna mig, sem eigi leituðu mín; eg sagði: hér er eg, hér er eg við þá þjóð, er eigi ákallaði nafn mitt.
Eg hefi rétt út hendur mínar allan daginn í móti þrjózkum lýð, í móti þeim, sem ganga á illum vegum, eftir eigin hugþótta sínum,
ðí móti fólki, sem reitir mig stöðuglega til reiði upp í opin augun, sem fórnar í lundunum og brennir reykelsi á tigulsteinunum,
sem lætur fyrirberast í gröfunum og er um nætur í hellunum,
elur svínakjöt og hefir viðbjóðslega súpu í ílátum sínum, sem segir: Far þú burt, kom ekki nærri mér; eg er heilagur fyrir þig! — slíkir menn eru reykur í nösum mér, eldur, sem brennur liðlangan daginn.
Sjá, það stendur skrifað frammi fyrir mér: Eg mun ekki þagna fyr en eg hefi goldið, já, eg mun gjalda þeim í skaut —
bæði fyrir misgjörðir yðar og fyrir misgjörðir feðra yðar, segir Drottinn, þeir sem brendu reykelsi á fjöllunum og smánuðu mig á hæðunum! — eg vil fyrst mæla þeim í skaut laun þeirra.
Svo segir Drottinn: Eins og menn segja, þegar lögur finst í vinberi: Ónýt það eigi, því að blessun er í þvíl eins vil eg gjöra fyrir sakir þjóna minna, svo að eg tortími þeim ekki öllum.
Eg vil láta afsprengi æxlast út af Jakob og út af Júda erfingja að fjöllum mínum; og mínir útvöldu skulu erfa það og þjónar mínir búa þar.
Og Saron skal verða að beitilandi fyrir hjarðir og Akor-dalur að nautastöðli fyrir þá af þjóð minni, sem leita mín.
En þér, sem yfirgefið Drottin, sem gleymið mínu heilaga fjalli, sem setjið borð fyrir heilladísina og hellið á kryddvíni fyrir örlaganornina,
yður ætla eg undir sverðið og allir skuluð þér leggjast niður til slátrunar, af því að þér gegnduð ekki, þegar eg kallaði, og heyrðuð ekki, þegar eg talaði, heldur aðhöfðust það, sem út var í mínum augum, og höfðuð mætur á því, sem mér mislíkaði.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, þjónar mínir munu eta, en yður mun hungra; sjá, þjónar mínir munu drekka, en yður mun þyrsta; sjá, þjónar mínir munu gleðjast, en þér munuð glúpna;
sjá, þjónar mínir munu fagna af hjartans gleði, en þér munuð kveina af hjartasorg og æpa af hugarkvöl.
Og þér munuð leifa mínum útvöldu nafn yðar sem formæling: Drottinn Guð deyði þig …! En sína þjóna mun hann nefna öðru nafni,
svo að hver sá er óskar sér blessunar í landinu, hann óskar sér blessunar í nafni hins trúfasta Guðs, og hver sem eið vinnur í landinu, hann vinnur eið við hinn trúfasta Guð, af því að hinar fyrri þrautir eru þá gleymdar og af því að þær eru huldar fyrir augum mínum.
Því sjá, eg skapa nýjan himin og nýja jörð, og hins fyrra skal ekki minst verða og það skal engum í hug koma.
Nei, gleðjist og fagnið æfinlega yfir því, sem eg skapa, því sjá, eg gjöri Jerúsalem að fögnuði og fólkið í henni að gleði.
Og eg vil fagna yfir Jerúsalem og gleðjast yfir fólki mínu, og eigi skal framar heyrast þar gráthljóð eða kveinstafir.
Eigi skal þar framar vera nokkurt ungbarn, er aðeins lifi fáa daga, né nokkurt gamalmenni, sem ekki nái fullum aldri; því að sá er þar ungur maður, sem deyr tíræður, og sá sem ekki nær tíræðisaldri, skal álitast bölvaður.
Ög þeir munu reisa hús og búa í þeim, og þeir munu planta vingarða og eta ávöxtu þeirra.
Eigi munu þeir reisa og aðrir í búa, eigi munu þeir planta og aðrir eta; því að aldur fólks míns mun vera sem aldur trjánna, og mínir útvöldu skulu sjálfir njóta handaverka sinna.
Eigi munu þeir erfiða til ónýtis og eigi börn geta til skammlífis, því að þeir eru kynslóð manna, er Drottinn hefir blessað, og niðjar þeirra verða hjá þeim.
Áður en þeir kalla, mun eg svara, og áður en þeir hafa orðimi slept, mun eg bænheyra.
Úlfur og lamb munu vera saman á beit, og ljónið mun hey eta sem naut — en moldin skal vera fæða höggormsins. Hvergi á mínu heilaga fjalli munu menn út fremja eða skaða gjöra, segir Drottinn.