Jesajabók 43Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 43

En nú segir Drottinn svo, sá er skóp þig, Jakob, og myndaði þig, Ísrael: Óttast þú eigi, því að eg frelsa þig; eg kalla á þig með nafni, þú ert minn.

gangir þú gegnum vötnin, þá er eg með þér, gegnum vatnsföllin, þá skulu þau ekki flæða yfir þig; gangir þú gegnum eld, skalt þú eigi brenna þig, og loginn skal eigi granda þér.

Því að eg, Drottinn, er Guð þinn, hinn Heilagi í Ísrael frelsari þinn; eg gef Egiptaland í lausnargjald fyrir þig, læt Bláland og Seba í staðinn þin.

Sökum þess að þú ert dýrmætur í mínum augum og mikils metinn, og af því að eg elska þig, þá legg eg menn í sölurnar fyrir þig og þjóðir fyrir líf þitt.

Óttast þú eigi, því að eg er með þér; eg kem með niðja þína úr austri og safna þér saman úr vestri.

Eg segi við norðrið: »Lát fram!« og við suðrið: »Haltu þeim eigi! Flyt þú sonu mína úr fjarlægð og dætur mínar frá endimörkum jarðarinnar:

sérhvern þann, sem við nafn mitt er kendur og eg hefi skapað mér til dýrðar, sérhvern þann, er eg hefi myndað og gjört«.

Lát nú koma fram lýð þann, sem blindur er, þótt hann hafi augu, og þá menn, sem daufir eru, þótt þeir hafi eyru.

Lát alla heiðingjana safnast í einn hóp og þjóðirnar koma saman. Hver af þeim getur kunngjört slíkt og látið oss heyra það, er þeir áður hafa spáð? Leiði þeir fram votta sína og færi sönnur á mál sitt, svo að menn segi, er þeir heyra það: það er satt!

En þér eruð mínir vottar, segir Drottinn, og minn þjónn, sem eg hefi útvalið, til þess að þér skylduð kannast við og trúa mér og skilja, að það er eg einn; á undan mér hefir enginn guð verið búinn til, og eftir mig mun enginn verða til.

Eg, eg er Drottinn, og enginn frelsari er til nema eg.

Það var eg, sem boðaði og hjálpaði og kunngjörði, en enginn annar yðar á meðal; og þér eruð Vottar mínir, segir Drottinn. Eg er Guð.

Já, enn í dag er eg hinn sami; enginn getur frelsað af minni hendi; hver vill gjöra það ógjört, sem eg framkvæmi?

Svo segir Drottinn, frelsari yðar, hinn Heilagi í Ísrael: Yðar vegna sendi eg til Babel og rek þá alla burt sem flóttamenn, Kaldeana, á skipum sínum, sem þeir nú eru hreyknir af.

Eg, Drottinn, er yðar Heilagi, höfundur Ísraels, konungur yðar.

Svo segir Drottinn, hann sem lagði veg yfir hafið og braut yfir hin ströngu vötn,

hann sem leiddi út vagna og hesta, herafla og fyrirliða; þeir liggja þar hver með öðrum og fá eigi risið á fætur; þeir sloknuðu, kulnuðu út sem hörkveikur:

Rennið eigi lurga til hins umliðna og gefið eigi gætur að því er aður var.

Sjá, nú hefi eg nýtt fyrir stafni; það tekur þegar að votta fyrir því — sjáið þér það ekki? Eg gjöri veg um eyðimörkina og leiði ar um öræfin.

Dýr merkurinnar, sjakalar og strútsfuglar skulu vegsal«af mig, því að eg leiði vatn um eyðimörkina og ár um öræfin, til þess að svala lýð mínum, mínum útvalda.

Sá lýður, sem eg hefi Skapað mér til handa, skal víðfrægja lof mitt.

Og eigi hefir þú kallað mig, Jakob, né lagt þig í tíma fyrir mig, Ísrael.

Þú hefir ekki fært mér sauðkindur þínar í brennifórnir og eigi tignað mig með sláturfórnum þínum; eg hefi eigi mætt þig með matfórnum né þreytt þig með reykelsi;

þú hefir ekki keypt ilmreyr fyrir silfur mér til handa, og þú hefir ekki satt mig á feiti sláturfórna þinna; heldur hefir þú mætt mig með syndum þínum og þreytt mig með misgjörðum þínum.

Eg, eg einn afmái afbrot þín sjálfs mín vegna og minnist ekki synda þinna.

Minn mig á; við skulum eigast lög við; tel þú upp, svo að þú fáir réttlætt þig.

Hinn fyrsti forfaðir þinn syndgaði og talsmenn þínir brutu á móti mér.

Þess vegna vanhelgaði eg hina heilögu höfðingja, og ofurseldi Jakob bannfæringunni og Ísrael háðunginni.