Gamla testamentiðSpámennirnir
En heyr þú nú, Jakob, þjónn minn, og Ísrael, sem eg hefi útvalið.
Svo segir Drottinn, sá er þig hefir skapað og þig hefir myndað frá móðurkviði, hann, sem hjálpar þér: Óttast þú eigi, þjónn minn Jakob, og þú Jesjúrún, sem eg hefi útvalið.
Því að eg mun hella vatni yfir hið þyrsta og árstraumum yfir þurlendið; eg mun úthella anda mínum yfir niðja þína og blessun minni yfir afsprengi þitt;
þeir skulu spretta upp, eins og gras milli vatna, eins og pílviðir á lækjarbökkum.
Einn mun segja: »Eg heyri Drottinn«, annar mun kalla sig nafni Jakobs, og enn annar rita á hönd sína »Helgaður Drottni« og kenna sig við Ísrael.
Svo segir Drottinn, konungur Ísraels og frelsari, Drottinn hersveitanna: Eg er hinn fyrsti, og eg er hinn síðasti, og enginn Guð er til nema eg.
Hver hefir spáð eins og eg — hann segi frá því og sanni mér það — frá því er eg hóf hina örgömlu þjóð? og látum þá kunngjöra hið ókomna og það, sem verða mun!
Skelfist eigi og látið eigi hugfallast. Hefi eg ekki þegar fyrir löngu sagt þér það og boðað það? Og þér eruð vottar mínir. Er nokkur Guð til nema eg? Nei, ekkert annað. hellubjarg er til; eg veit af engu öðru.
Þeir, sem búa til goðalíkneski, eru hver með öðrum hégóminn einber, og dýrindissmíðar þeirra eru að engu liði; vottar slíkra guða sjá eigi og vita eigi, til þess að þeir verði sér til skammar.
Hver hefir myndað guð og. steypt líkneski, til þess að það verði að engu liði?
llSjá, allir dýrkendur þess munu til skammar verða; og smiðirnir þeir eru þó ekki nema menn — látum þá alla safnast saman og ganga fram, þeir skulu skelfast og til skammar verða hver með öðrum.
Járnsmiðurinn myndar egg á öxina, tekur hana fram við glóð, og lagar hana með hömrunum; hann Þýr hana til með hinum sterka armlegg sínum; en svelti hann, þá vanmegnast hann; fái hann ekki vatn að drekka, lýist hann.
Trésmiðurinn strengir mæliþráð sinn og markar fyrir með alnum, telgir tréð með hnífum og afmarkar það með sirkli; og hann býr til úr því mannlíkan, fríðan mann, til þess að búa í húsi.
Hann höggur sér sedrustré, tekur steineik og eik, og velur um meðal skógartrjánna; hann gróðursetur furutré, og regnskúrirnar koma vexti í þau.
B Og maðurinn hefir tréð til eldiviðar, hann tekur nokkuð af því og vennir sig við, hann kveikir eld við það og bakar brauð, en auk Þess býr hann til guð úr því og fellur fram fyrir honum; hann smíðar úr því skurðgoð og knékrýpur því.
Helmingnum af trénu brennir hann í eldi; við þann helminginn steikir hann kjöt, etur steik og verður saddur; hann vermir sig og segir; »Æ, nú hitnar mér, eg sé eldinn;
en úr afganginum býr hann til guð, skurðgoð handa sér; hann knékrýpur því, fellur fram og gjörir bæn sína til þess og segir: »Frelsaðu mig, því að þú ert minn guð!«
Þeir hafa hvorki skyn né skilning; augu þeirra eru lokuð, svo að þeir sjá ekki, og hjörtu þeirra, svo að þeir skynja ekki.
Og þeir hugleiða það eigi, þeir hafa eigi vitsmuni og skilning til að hugsa með sér: »Helmingnum af því brendi eg í eldi, eg bakaði brauð við glæðurnar, steikti kjöt og át; og svo ætti eg að fara að búa til andstyggilegt líkneski af því, sem afgangs er, og falla á kné fyrir trédrumbi!«
Þann mann, er sækist eftir ösku, hefir táldregið hjarta leitt afvega, svo að hann fær eigi frelsað sálu sína og sagt við sjálfan sig: »Er það ekki svikatál, sem eg held á í hægri hendi minni?«
Minstu þess, Jakob, og þú Ísrael, því að þú ert þjónn minn; eg hefi skapað þig til að vera þjón minn; þú, Ísrael, munt mér aldrei úr minni líða!
Eg hefi feykt burt misgjörðum þínum eins og þoku, og syndum þínum eins og skýi; hverf aftur til mín, því að eg frelsa þig.
Fagnið, þér himnar, því að Drottinn hefir því til vegar komið; látið gleðilátum, þér undirdjúp jarðarinnar; hefjið fagnaðarsöng, þér fjöll, skógurinn og öll tré, sem í honum eru; því að Drottinn frelsar Jakob og sýnir vegsemd sína á Ísrael.
Svo segir Drottinn, frelsari þinn, sá er þig hefir myndað frá móðurkviði: Eg, Drottinn, sem alt hefi skapað, sem útþandi himininn aleinn og útbreiddi jörðina hjálparlaust,
sá sem ónýtir tákn lygaranna og gjörir spásagnamennina að fíflum, sem gjörir vitringana afturreka og þekking þeirra að heimsku,
sem staðfestir orð þjóns síns og framkvæmir ráð sendiboða sinna — eg er sá, sem segi um Jerúsalem: verði hún aftur bygð! og um borgirnar í Júda: verði þær endurreistar! og rústir þeirra reisi eg við;
eg er sá, sem segi við djúpið: þorna þú upp! og ár þínar þurka eg upp;
eg er sá sem segi um Kýrus: hann er hirðir minn; og hann skal framkvæma allan vilja minn og segja um Jerúsalem: hún skal endurreist verða og musterið grundvallað af nýju!