Jesajabók 42Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 42

Sjá þjón minn, sem eg leiði mér við hönd, minn útvalda, sem sál mín hefir þóknun á; eg legg anda minn yfir hann, hann mun boða þjóðunum rétt.

Hann kallar ekki og hefir ekki háreysti og lætur ekki herra raust sína á strætunum.

Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur, og dapran hörkveik slökkur hann ekki; hann boðar réttinn með trúfesti.

Hann daprast eigi og gefst eigi upp, unz hann fær komið inn rétti á jörðu, og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans.

Svo segir Guð, Drottinn, sá er skóp himininn og þandi hann út, sá er breiddi út jörðina með öllu því, sem á henni vex, sá er andardrátt gaf mannfólkinu á jörðinni og lífsanda þeim, er á henni ganga:

Eg, Drottinn, hefi kallað þig til réttlætis og held í hönd þína, og eg mun varðveita þig og gjöra þig að sáttmála fyrir lýðinn og að ljósi fyrir þjóðirnar,

il að opna hin blindu augun, til að leiða út úr varðhaldinu þá, er bundnir eru, og úr dýflissunni þá, er í myrkri sitja.

SEg er Drottinn; það er nafn mitt; og dýrð mína gef eg eigi öðrum né lof mitt úthöggnum líkneskjum.

Sjá, hinir fyrri spádómar eru fram komnir, en nú boða eg nýja hluti og læt yður heyra þá áður en fyrir þeim vottar.

Syngið Drottni nýjan söng, lof hans til endimarka jarðarinnar, þér sjófarendur og alt sem í hafinu er, þér fjarlægar landsálfur og þeir sem þær byggja!

Eyðimörkin og borgir hennar skulu hefja upp raustina, þorpin, þar sem Kedar býr; fjallabúarnir skulu fagna, æpa af gleði ofan af fjallatindunum!

Þeir skulu gefa Drottni dýrðina, og kunngjöra lof hans í fjarlægum landsálfum!

Drottinn af stað sem hetja, elur á hugmóð sínum eins og bardagamaður; hann kallar, hann lýstur upp herópi, sýnir hetjuskap á óvinum sínum.

»Eg hefi þagað langan tíma, verið hljóður og stift mig; nú mun eg hljóða sem jóðsjúk kona, stynja og standa á öndinni í sama bili.

Eg mun svíða fjöllin og hálsana og skrælna láta allar jurtir, er þar vaxa; eg mun gjöra ár að eyjum og þurka upp tjarnirnar.

Og eg mun leiða blinda menn um veg, er þeir ekki rata, færa þá um stigu, sem þeir ekki þekkja; eg vil gjöra myrkrið fram undan þeim að ljósi og hólótt landið að jafnsléttu. Þessa hluti mun eg gjöra og eg hætti eigi við þá.

Hinir hörfa aftur á bak og verða sér til skammar, þeir sem treysta skurðgoðunum og segja við steypt líkneski: »Þér eruð guðir vorir«.

Heyrið, þér hinir daufu! lítið upp, þér hinir blindu, að þér megið sjá!

Hver er svo blindur sem þjónn minn, og svo daufur sem sendiboði minn, er eg hefi útsent? Hver er svo blindur sem trúnaðarmaðurinn, og svo blindur sem þjónn Drottins?

Þú hefir séð margt, en athugar það ekki; eyrun eru opin, en hann heyrir þó ekki.

Fyrir sakir réttlætis síns hefir Drottinn þóknast að gjöra kenninguna háleita og vegsamlega.

Og þó er þetta ræntur og ruplaður lýður; þeir eru allir fjötraðir í gryfjum og byrgði! í myrkvastofum; þeir eru orðnir að herfangi, og enginn frelsar þá, orðnir að ránsfeng, og enginn segir: Skilið þeim aftur!

Hver af yður vill hlýða á þetta, gefa því gaum og veita því athygli framvegis?

Hver hefir framselt Jakob til ráns og fengið Ísrael ræningjum í hendur? Er það ekki Drottins, hann, sem vér höfum syndgað á móti? Á hans vegum vildu þeir ekki ganga og hans lögmáli hlýddu þeir ekki.

Fyrir því jós hann yfir hann brennandi reiði sinni og styrjaldarofsa; hún bálaðist umhverfis hann, en hann skyldi það eigi, hún brendi hann, en hann hugfesti það eigi.