Gamla testamentiðSpámennirnir
Í Vei þeim, sem fara suður til Egiptalands í liðsbón, sem reiða sig á hesta og treysta á vagna, af því að þeir séu margir, og á riddara, af því að fjöldinn sé mikill, en líta ekki til hins Heilaga Í Ísrael og leita ekki Drottins.
En hann er líka ráðspakur og lætur ógæfuna yfir koma og tekur ekki orð sín aftur; hann rís upp í móti húsi illvirkjanna og í móti hjálparliði misgjörðamannanna.
Egiptar eru menn, en enginn Guð; hestar þeirra eru hold, en eigi andi; þegar Drottinn réttir út hönd sína, hrasar liðveitandinn og liðþeginn fellur, svo að þeir farast allir hver með öðrum.
Því að svo hefir Drottinn við mig sagt: Eins og ljónið eða ljónskálfurinn urrar yfir bráð sinni, þegar hjarðmannahóp er stefnt saman á móti honum, og hann hræðist ekk! köll þeirra og lætur ekki hugfallast við háreysti þeirra, eins mun Drottinn€ hersveitanna ofan stíga, til þess að herja á Zion-fjall og hæð þess:
Eins og fuglar á flökti, eins mun Drottinn hersveitanna vernda Jerúsalem, vernda hana og frelsa, vægja henni og bjarga.
Hverfið aftur, þér Ísraelsmenn, til hans, sem þér eruð horfnir svo langt í burtu frá.
Því að á þeim degi munu þeir hver og einn hafna silfurgoðum sínum og gullgoðum, er hendur yðar hafa gjört handa yður bl að syndgast á.
Assúr skal fyrir sverði falla, en ekki fyrir manna sverði; sverð skal verða honum að bana, en ekkert mannssverð; hann mun undan sverði Jlýja og æskumenn hans verða ánauðugir.
Og bjarg hans mun farast af ótta og höfðingjar hans flýja í ofboði undan merkinu, segir Drottinn, sem hefir eld sinn á Zíon og arinn sinn í Jerúsalem.