Jesajabók 30Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 30

Vei hinum þverúðugu börnum, segir Drottinn, sem taka saman ráð, er eigi koma frá mér, og gjöra bandalag. án þess að minn andi sé með í verki, til að hlaða synd á synd ofan;

sem gjöra sér ferð suður til Egiptalands án þess að leita minna atkvæða, til að leita sér hælis hjá Faraó og fá sér skjól í skugga Egiptalands.

En hælið hjá Faraó skal verða yður til skammar og skjólið í skugga Egiptalands til smánar!

ÍLátum höfðingja þeirra vera í Zóan og sendimenn þeirra komast alla leið til Hanes!

Þeir munu allir skammast sín fyrir þá þjóð, sem eigi hjálpar þeim, er að engu liði verður og til engrar hjálpar, heldur eingöngu til skammar og háðungar.

Spádómur um dýr suðurlandsins. Um torfæruland og angistar, þar sem ljónynjur og ljón, eiturormar og flugdrekar hafast við, flytja þeir auðæfi sín á asnabökum og fjársjóðu sína á úlfaldakryppum til þeirrar þjóðar, sem eigi hjálpar þeim.

Því að liðveizla Egiptalands er fánýt og einskis virði; fyrir því kalla eg það: Stórgortarinn, er eigi hefst að.

Far nú og rita það á spjald hjá þeim og letra það í bók, svo að það á komandi tímum verði til vitnisburðar æíinlega.

Því að þetta er þrjózkur lýður, lygin börn, börn sem eigi vilja heyra kenningu Drottins,

sem segja við sjáendur: »Þér skuluð eigi sjá sýnir«, og við vitranamenn: »Þér skuluð eigi birta oss sannleikann; sláið oss heldur gullhamra og birtið oss blekkingar.

Farið út af veginum, beygið út af brautinni, komið hinum Heilaga í Ísrael burt frá augliti voru.

Fyrir því segir hinn Heilagi í Ísrael svo: Sökum þess að þér hafnið þessu orði, en reiðið yður á ofríki og andhælisskap og styðjist við það,

fyrir því skal þessi misgjörð verða yður eins og veggjarkafli, sem bungar út á háum múrvegg og kominn er að hruni; skyndilega og óvörum hrynur hann;

og hann mun brjóta hann sundur, eins og þegar leirker er brotið, vægðarlaust mölvað, svo að af molunum fæst eigi svo mikið sem leirbrot til að taka með eld af arni eða til að ausa með vatn úr þró.

Því að svo hefir Drottinn Guð, hinn Heilagi í Ísrael, sagt: »Fyrir afturhvarf og rósemi skuluð þér frelsaðir verða; í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera«, en þér vilduð það ekki

og sögðuð: Nei, á hestum skulum vér þjóta - fyrir því skuluð þér flýja! — og á léttum reiðskjótum skulum vér ríða — fyrir því skulu þeir vera léttir á sér, sem elta yður!

Eitt þúsund skal flýja fyrir ógnunum eins manns, fyrir ógnunum fimm manna skuluð þér flýja, ung eftirleifar yðar verða sem vitastöng á fjallstindi og sem hermerki á hóf.

Fyrir því dregur Drottinn það, að miskunna yður, og fyrir því heldur hann kyrru fyrir, unz hann getur líknað yður; því að Drottinn er Guð réttlætis; sælir eru allir þeir, sem á hann vona.

Já, þú lýður í Zíon, þú sem býr í Jerúsalem, grát þú eigi án afláts; hann mun vissulega miskunna þér, þegar þú kallar í neyðinni, hann mun bænheyra þig, þegar hann heyrir til þín.

Drottinn mun gefa yður neyðarbrauð og þrengingarvatn; kennhendur þínir munu þá eigi framar fela sig, heldur munu augu þín líta kennendur þína,

og eyru þín munu heyra þessi orð kölluð á eftir þér, þá er þér víkið til hægri handar eða vinstri: »Hér er vegurinn! Farið hann!«

Þá munuð þér óhrein telja hin silfurlögðu skurðgoð yðar og hin gullbúnu líkneski yðar; þú munt burtsnara þeim eins og einhverri viðurstygð, þú munt segja við þau: burt héðan.

Þá mun hann regn gefa sæði því, er þú sáir í akurland þitt, og brauð af gróðri akurlandsins; kjarngott og kostmikið mun það vera; fénaður þinn mun á þeim degi ganga í viðlendum grashaga.

Uxarnir og asnarnmir, sem akurinn erja, skulu eta saltan fóðurblending, sem hreinsaður hefir verið með varpskóflu og varpkvísl.

Á hverju háu fjalli og á hverri gnæfandi hæð munu vatnslækir fram fljóta á hinum mikla mannfallsdegi, þegar turnarnir hrynja.

Þá mun tunglsljósið verða sem sólarljós, og sólarljósið sjöfaldast, eins og sjö daga Ljós, þann dag er Drottinn hindur um sár þjóðar sinnar og græðir hennar krömdu undir.

Sjá, nafn Drottins kemur úr fjarlægð; reiði hans bálar og þykkan reykjarmökk leggur upp af; heiftin freyðir um varir hans og tunga hans er sem eyðandi eldur.

Andgustur hans er sem ólgandi vatnsfall, það er tekur manni í háls; hann mun drifta heiðingjana í sáldi eyðingarinnar og leggja þjóðunum í munn bitil þann, er leiðir þær afvega.

Þá munuð þér syngja ljóð, eins og aðfaranótt hátíðar, og hjartans gleði á yður vera, eins og þegar gengið er með hljóðpípum upp á fjall Drottins til hellubjargs Ísraels.

Þá mun Drottinn heyra láta hina hátignarlegu raust sína og láta sjá til sín, þegar hann reiðir ofan armlegg sinn í brennandi reiði, með eyðandi eldslogum, með helliskúrum, steypihríðum og hagléljum.

Já, fyrir raustu Drottins mun Assúr skelfast, er hann lýstur hann með sprota sínum.

Og í hvert sinn sem refsívölur sá, er Drottinn reiðir á lofti uppi yfir honum, kemur niður, mun heyrast bumbuhljóð og gígjusláttur, og með því að sveifla hendinni, mun hann berjast gegn þeim.

Því að brenslugróf er þegar fyrir Löngu undirbúin; hún er og gjörð banda konunginum. Hann hefir gjört eldslæðið í henni djúpt og vítt; hann ber að mikinn eld og við. Andgustur Drottins kveikir í því, eins og brennisteinsflóð.