Gamla testamentiðSpámennirnir
Ó Þegar konungurinn ríkir með réttlæti og höfðingjarnir stjórna með réttvísi,
þá verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi og skjól fyrir skúrum, sem vatnslækir í öræfum, sem skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi.
Þá eru augu hinna sjáandi eigi afturlukt og þá hlusta eyru þeirra, sem heyrandi eru;
hjörtu hinna gálausu læra hyggindi og tunga hinna mállausu talar liðugt og skýrt.
Þá er heimskinginn eigi framar kallaður göfugmenni og hinn undirföruli eigi sagður veglyndur.
Því að heimskinginn talar heimsku og hjarta hans býr mönnum ógæfu, með því að hann breytir óguðlega og talar villu gegn Drottni, lætur hinn hungraða vera svangan og gefur eigi þyrstum manni vatnsdrykk.
Vopn hins undirförula eru skaðvænleg; hann hugsar upp pretti, til þess að koma hinum umkomulausa á kné með lygaræðum, og það jafnvel þótt hinn fátæki sanni rétt sinn.
En göfugmennið hefir göfugleg áform og stendur stöðugur í því, sem göfuglegt er.
Þér áhyggjulausu konur, standið upp og heyrið raust mína; þér ugglausu dætur, gefið gaum að ræðu minni.
Eftir ár og daga skulu þér hinar ugglausu skelfast, því að vínberjatekjan bregzt og aldintekja verður engin.
Hræðist, þér hinar áhyggjulausu!í skelfist, þér hinar ugglausu! Farið af klæðum og verið naktar, gyrðið hærusekk um lendar yðar.
menn munu bera sig hörmulega vegna akranna, vegna hinna yndislegu akra, vegna hins frjósama vínviðar.
Á akurlöndum þjóðar minnar munu vaxa þyrnar og þistlar, já í öllum glaðværðarhúsunum í hinni glaummiklu borg.
Því að hallirnar munu verða mannauðar og hávaði borgarinnar hverfa. Ófel og varðturninn verða hellar um aldur og æfi, skógarösnum til skemtunar og hjörðum til hagbeitar —
unz úthelt verður yfir oss anda af hæðum; þá skal eyðimörkin verða að aldingarði og aldingarður talinn verða kjarrskógur,
léttvísin festa bygð í eyðimörkinni og réttlætið taka sér bólfestu í aldingarðinum;
og ávöxtur réttlætisins skal vera friður, og árangur léttlætisins rósemi og öruggleiki að eilífu.
Þá skal þjóð mín búa í heimkynni friðarins, í híbýlum öruggleikans og í rósömum bústöðum.
En hegla mun þegar skógurinn hrynur og borgin steypist.
Sælir eruð þér, sem alstaðar sáið við vötn og látið uxa og asna ganga sjálfala.