Jesajabók 27Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 27

Á þeim degi mun Drottinn með hinu harða, mikla • og sterka sverði sínu hegna Levíatan, hinum ítughraða dreka, og Levíatan, hinum hugðótta dreka, og bana sjóskrímslinu.

Á þeim degi skuluð þér kveða um hinn yndislega víngarð:

Eg, Drottinn, er vörður hans; eg vökva hann á hverri stundu; til þess að enginn vinni þar spell, gæti eg hans nótt og dag.

Varnarmúr átt þú engan; en vilji nokkur gjöra þig að þyrnum og þistlum með styrjöld, þá mun eg ráða á hann og brenna hann,

nema hann leiti hælis hjá mér og gjöri frið við mig, gjöri frið við mig.

Á komandi tímum mun Jakob festa rætur, Ísrael blómgast og frjóvast, og þeir munu fylla jarðarkringluna með ávöxtum.

Hefir hann lostið lýðinn annað eins högg og það, er hann lýstur þá, sem lustu hann? eða hefir hann myrtur verið, eins og banamenn hans eru myrtir?

með því að reka hann frá þér, með því að láta hann frá þér, hegnir þú honum; hann hreif hann burt með hinum hvassa vindi sínum, þegar austanstormurinn geisaði.

Þess vegna verður misgjörð Jakobs með því afplánuð og með því er synd hans algjörlega burt numin, að hann lætur alla altarissteinana verða sem brotna kalksteina, svo að asérurnar og sólsúlurnar rísa ekki upp framar.

Því að hin víggirta borg er komin í eyði, eins og mannauður og yfirgefinn áfangastaður í eyðimörkinni; kálfar ganga þar á beit og liggja þar og bíta þar kvistu.

Þegar greinarnar þorna, eru þær brotnar; konur koma og kveikja eld við þær. Því að hún var óvitur þjóð; fyrir því getur hann, sem skóp hana, ekki verið henni miskunnsamur, og hann, sem myndaði hana, ekki verið henni líknsamur.

En á þeim degi mun Drottinn slá ávöxtinn niður, alt í frá straumi fljótsins til Egiptalandsár, og þér munuð saman tíndir verða einn og einn, Ísraelsmenn!

Á þeim degi mun blásið verða í mikinn lúður, og þá munu þeir koma, hinir töpuðu í Assúrlandi og hinir burtreknu í Egiptalandi, og þeir munu tilbiðja Drottin á fjallinu helga í Jerúsalem.