Jesajabók 28Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 28

Ó Vei hinum drembilega höfuðsveig drykkjurútanna í Efraím, hinu bliknandi blómi, hinni dýrlegu prýði þeirra, sem stendur á hæðinni í frjósama dalnum hinna víndruknu.

Sjá, sterk og voldug hetja kemur frá drotni; eins og haglskúr, fárviðri, eins og dynjandi, streymandi regn í helliskúr varpar hann honum til jarðar með hendi sinni.

Fótum troðinn skal hann verða, hinn drembilegi höfuðsveigur drykkjurútanna í Efraím.

Og fyrir hinu bliknandi blómi, hinni dýrlegu prýði þeirra, sem stendur á hæðinni í frjósama dalnum, skal fara eins og árfíkju, er þroskast fyrir uppskeru: einhver kemur auga á hana og gleypir hana óðara en hann hefir náð henni.

Á þeim degi mun Drottinn hersveitanna vera dýrlegur höfuðsveigur og prýðilegt höfuðdjásn fyrir leifar þjóðar sinnar

og réttlætisandi þeim, er í dómum sitja, og styrkleikur þeim, er bægja burt ófriðnum að borghliðum óvinanna.

En einnig hérna reika menn af víni og skjögra af áfengum drykkjum. Prestar og spámenn reika af áfengum drykkjum, eru ruglaðir af víni, skjögra af áfengum drykkjum; þá svimar í vitrunum sínum og alt hringsnýst fyrir þeim í úrskurðum þeirra.

Því að öll borð eru full af viðbjóðslegri spýju, enginn blettur hreinn eftir.

»Hverjum þykist hann vera að kenna vizku og hvern ætlar hann að fræða með boðskap sínum? Erum vér nývandir af mjólkinni og nýteknir af brjóstunum?

Alt af að skipa og skipa, skipa og skipa — skamma og skamma, skamma og skamma — ýmist þetta, ýmist hitt«.

Já, með stamandi vörum og annarlegri tungu mun hann láta tala til þessarar þjóðar,

hann sem sagði við þá: »Þetta er hvíldin — ljáið hinum þreytta hvíldar! — hér er hvíldarstaður«, en þeir vildu ekki heyra.

Fyrir því mun orð Drottins láta svo í eyrum þeirra: skipa og skipa, skipa og skipa — skamma og skamma, skamma og skamma — ýmist þetta, ýmist hitt«, að þeir steypist aftur á bak og beinbrotni, festist í snörunni og verði teknir.

Heyrið því orð Drottins, þér spottsamir menn, þér sem drotnið yfir fólki því, sem býr í Jerúsalem.

Sökum þess að þér segið: vér höfum gjört sáttmála við dauðann og samning við Helju; þó að hin dynjandi svipa ríði yfir, þá mun hún eigi til vor koma, því að vér höfum gjört lygi að hæli voru og falið oss í skjóli svikanna«, —

fyrir því Segir Drottinn Guð svo: Sjá, eg legg undirstöðustein á Zíon, traustan Stein, óbifanlegan, ágætan hornstein; sá sem trúir, er eigi óðlátur.

Og eg gjöri réttinn að mælivað og réttlætið að mælilóði; og haglhríð skal feykja burt hæli lyginnar og vatnsflóð skola burt skjólinu.

Sáttmáli yðar við dauðann skal rofinn verða og samningur yðar við Helju eigi standa; þá er hin dynjandi svipa ríður yfir, skuluð þér sundurmarðir erða af henni.

hvert sinn, sem hún ríður yfir, skal hún hremma yður, því að á hverjum morgni ríður hún yfir, nótt sem nýtan dag; og það skal verða skelfingin ein að skilja boðskapinn.

Því að hvílan mun verða of stutt til þess, að maður fái rétt úr sér, og ábreiðan of mjó til þess, að maður fái skýlt sér með henni.

Því að Drottinn mun standa Upp, eins og á Perazímfjalli, hann mun reiðast, eins og í dalnum hjá Gíbeon, til þess að hann vinni verk sitt, hið undarlega verk sitt, og framkvæmi starf sitt, hið óvanalega starf sitt.

Látið nú af spottinu, Svo að fjötrar yðar verði ekki enn harðari; því:að eg hefi heyrt af Árotni, Drottinn hersveitanna, að fastráðið sé, að eyðing komi yfir land alt.

Hlustið á og heyrið mál mitt! Hyggið að og heyrið orð mín!

Hvort plægir plógmaðurinn í sífellu til sáningar, ristir upp og herfir akurland sitt?

Hvort mun hann eigi, þegar hann hefir jafnað moldina að ofan, sælda þar karfa og sá kúmeni, setja hveiti niður í raðir, hygg á tilteknum stað og speldi í útjaðarinn?

Guð hans kennir honum hina réttu aðferð og leiðbeinir honum.

Því að eigi er karfi þresktur með þreskisleða, né vagnhjóli velt yfir kúmen; keldurer karfi barinn af með þúst og kúmen með staf.

Mun neyzlukorn mulið sundur? Nei, menn halda ekki stöðugt áfram að þreskja það, og keyra eigi vagnhjól sín né hesta yfir það; menn mylja það eigi sundur.

Einnig þetta kemur frá Drottni hersveitanna; hann er undursamlegur í ráðum og mikill í vísdómi.