Gamla testamentiðSpámennirnir
Já, á náttarþeli verður Ar í Móab unnin og gjöreydd! Já, á náttarþeli verður Kír í Móab unnin og gjöreydd!
Batt og Díbon stíga upp á hæðirnar til að gráta. Móab kveinar á Nebó og í Medeba. Hvert höfuð er sköllótt, alt skegg afrakað.
Á strætunum eru þeir gyrtir hærusekk. Uppi á þökunum og á torgunum kveina þeir allir, fijótamh í tárum.
Hesbon og Eleale hljóða svo hátt, að það heyrist til JahazÞess vegna æpa hermennirnir í Móab; þeim er horfinn hugur.
Hjarta mitt kveinar yfir Móab; flóttamenn þeirra flýja til Zóar, til Eglat-Selísía; því að grátandi ganga þeir upp stíginn hjá Lúkít; því að á veginum til Hórónaím hefja þeir neyðarkvein tortímingarinnar.
Því að Nimrímvötn eru orðin að öræfum; því að grasið skrælnar, jurtirnar eyðast, afi grængresi hverfur.
Fyrir því bera þeir það, sem þeir hafa dregið saman, og það, sem þeir hafa geymt, yfir Pílviðará.
Því að neyðarkveinið gengur yfir gjörvalt Móabsland; hljóðin berast alt til Eglaím, hljóðin berast alt til Beer-Elím.
Því að vötn Dímonar eru full af blóði, því að enn vil eg leggja meira á Dímon: ljón fyrir þá, sem undan komast frá Móab, og fyrir þá, sem eftir verða í landinu.