Gamla testamentiðSpámennirnir
Sendið landshöfðingjanum sauðaskattinn úr klettagjánum gegnum eyðimörkina til fjalls Zíon-dóttur.
Eins og flöktandi fuglar, eins og ungar, fældir úr hreiðri, skulu Móabs-dætur verða við vöðin á Arnon:
yLegg nú ráð, veit hjálp, gjör skugga þinn um hábjartan dag sem nótt; fel hina burtreknu, seg ekki til flóttamannanna.
Ljá hinum burtreknu úr Móab dvöl hjá þér; ver þeim verndarskjól fyrir eyðandanum, þar til kúgarinn er horfinn burt, eyðingunni linnir og undirokararnir eru farnir úr landinu.
Þá mun veldistóll reistur verða með miskunnsemi og á honum sitja með trúfesti í tjaldi Davíðs dómari, sem leitar réttinda og temur sér réttlæti.
Vér höfum heyrt drambsemi Móabs — hann er mjög hrokafullur — ofmetnað hans, drambsemi og ofsa, og hin marklausu stóryrði hans.
Þess vegna kveinar nú Móab yfir Móab; allir kveina þeir. Yfir rúsínukökum Kír-Hareset munuð þér andvarpa harla hnugnir.
Því að akurlönd Hesbon eru fölnuð og víntré Síbma; vínber þeirra vörpuðu höfðingjum þjóðanna til jarðar; þau komust til Jaser, villust út um eyðimörkina; greinar þeirra breiddu sig út, fóru yfir hafið.
Fyrir því græt eg með Jaser yfir víntrjám Síbma. Eg vökva þig með tárum mínum, Hesbon og Eleale! því að fagnaðarópum óvinanna laust yfir sumargróða þinn og vínberjatekju.
Fögnuður og kæti er horfin úr aldingörðunum, og í víngörðunum heyrast engir gleðisöngvar né fagnaðarhljóð; troðslumenn troða ekki vínber í vínþröngunum; eg hefi látið fagnaðaróp þeirra þagna.
Fyrir því titrar hjarta mitt sem gígjustrengur sökum Móahs og brjóst mitt sökum Kír-Hares.
Og þó að Móab sýni sig á blóthæðinni og streitist við og fari inn í helgidóm sinn, til að biðjast fyrir, þá mun hann samt engu til leiðar koma.
Þetta er það orð, sem Drottinn talaði um Móab fyrrum.
En nú talar Drottinn á þessa leið: Áður en þrjú ár eru liðin, slík sem ár kaupamanna eru talin, skal vegsemd Móabs með öllum hinum mikla mannfjölda fyrirlitin verða, en leifarnar, litlar og lítilfenglegar, mun eg vegsamlegar gjöra.