Jesajabók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 14

Því að Drottinn mun miskunna Jakob og enn útvelja Ísrael. Hann mun gefa þeim bólfestu í landi þeirra, og útlendir menn munu sameinast þeim og gjöra félagskap við Jakobs hús.

Og þjóðirnar munu taka þá og flytja þá til átthaga þeirra; en Ísraelsniðjar munu eignast þær að þrælum og ambáttum í land! Drottinn; þeir munu hertaka hertakendur sína og drotna yfir kúgurum sínum.

Og þegar Drottinn veitir þér hvíld af þrautum þínum og ónæði og af hinni hörðu ánauð, sem á þig var lögð,

þá muntu kyrja upp háðkvæði þetta um Babel-konung og segja: Hversu hljóður er harðstjórinn nú orðinn, hve hljótt í kvalastaðnum!

Drottinn hefir sundurbrotið staf hinna óguðlegu, sprota yfirdrotnaranna,

sem laust þjóðflokkana í bræði högg á högg ofan, og kúgaði þjóðirnar í reiði. með vægðarlausri kúgan.

Öll jörðin nýtur nú hvíldar og friðar, fagnaðarópin kveða við..

Jafnvel kýprestrén gleðjast yfir þér og sedrustrén á Líbanon: fyrst þú ert lagstur lágt, mun enginn upp stíga, til þess að fella oss.

Hjá Helju niðri er alt í uppnámi þín vegna, til þess að taka á móti þér;: vegna þín rekur hún vofurnar á fætur, alla foringja jarðarinnar; af hásætum sínum lætur hún upp standa alla þjóðkonunga.

Þeir taka allir til máls og segja við þig: »Þú ert þá einnig orðinn máttvana sem vér, orðinn jafningi vor!

Ofmetnaðar-skrauti þínu er niður varpað til Heljar, hreimnum harpna þinna! Ormar eru breiddir undir þig, og ábreiðan þín eru maðkar.

Hversu ertu hröpuð af himni, árborna morgunstjarna! Hversu ert þú að velli lagður, undirokari þjóðanna!

Þú, sem sagðir í hjarta þínu: »Eg vil upp stíga til himins! Ofar stjörnum Guðs vil eg reisa veldistól minn! Á þingfjalli guðanna vil eg setjast að, yzt í norðri.

Eg vil upp stíga ofar skýjaborgum, gjörast líkur hinum hæsta!«

Já, til Heljar var þér niður varpað, í neðstu fylgsni grafarinnar.

Þeim, sem sjá þig, verður starsýnt á þig, þeir virða þig fyrir sér: »Er þetta maðurinn, sem skók jörðina: og skelfdi konungaríkin,

gjörði jarðkringluna að eyðimörk, eyddi borgir hennar og gaf eigi bandingjum sínum heimfararleyfi?«

Allir konungar þjóðanna liggja virðulega grafnir, hver í sínu húsi;

en þér er fleygt út, langt frá gröf þinni, eins og auvirðilegum kvisti; þú ert þakinn dauðra manna búkum, þeirra er lagðir voru sverði, eins og fótum troðið hræ.

Við þá, sem stíga niður í steinlagðar grafir, hefir þú eigi samneyti; því að land þitt hefir þú eytt, myrt þjóð þína. Eigi skal nefnt verða að eilífu afsprengi illvirkjanna.

Búið nú sonum hans rauðan serk, sakir misgjörða feðra þeirra; eigi skulu þeir fá risið á legg og lagt undir sig jörðina, né fylt jarðkringluna rústum!

Es vil rísa upp í gegn þeim, segir Drottinn hersveitanna, og afmá nafn og leifar Babel-borgar, ætt og afkomendur, segir Drottinn.

Eg vil gefa hana stjörnuhegrum til eignar og láta hana verða að vatnsmýri; eg vil sópa henni burt með sópi eyðingarinnar, segir Drottinn hersveitanna.

Drottinn hersveitanna hefir svarið og sagt: Sannlega, það, sem eg hefi fyrirhugað, skal verða, og það, sem eg hefi ályktað, skal framgang fá.

Eg mun sundurmola Assúr í landi mínu og fótum troða hann á fjöllum mínum; skal þá ok hans af þeim tekið og byrði hans tekin af herðum þeirra.

Þetta er sú ráðstöfun, sem áformuð er um alla jörðina, og þetta er sú hönd, sem út er rétt gegn öllum þjóðum.

Því að Drottinn hersveitanna hefir ályktað þetta; hver má ónýta það? Það er hans hönd, sem út er rétt; hver má kippa henni aftur?

Þessi spádómur var birtur árið sem Akas konungur andaðist.

Gleðst þú eigi, gjörvöll Filistea, af því að stafurinn, sem sló þig, er í sundur brotinn, því að út af rót höggormsins mun naðra koma og ávöxtur hennar verða flugdreki.

Hinir allra-litilmótlegustu skulu hafa viðurværi, og hinir fátæku hvílast óhultir, en rót þína vil eg með hungri deyða, og leifarnar af þér munu drepnar verða.

Kveina, þú hlið! hljóða þú, borg! Gnötra þú, gjörvöll Filisteal því að mökkur kemur úr norðurátt; í fylkingum hans dregst enginn aftur úr.

Og hverju skal þá svara sendimönnum hinnar heiðnu þjóðar? Að Drottinn hafi grundvallað Zíon, og að hinir þjáðu meðal þjóðar hans leiti sér hælis í henni.