Jesajabók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 13

Spádómur um Babel, er vitraðist Jesaja Amozsyni.

Reisið merki á skóglausri hæð! kallið hárri röddu til þeirra! bendið þeim með hendinni, að þeir fari inn um hlið harðstjóranna!

Eg er sá, sem boðið hefi út vígðum liðsmönnum mínum og kallað á kappa mína, til að framkvæma reiðidóm minn, þessa hreyknu og hróðugu menn mína.

Heyr þysinn á fjöllunum, eins og af mannmergð, heyr gnýinn af hinum samansöfnuðu þjóðum; Drottinn hersveitanna er að kanna liðið.

eir koma frá fjarlægu landi, frá himins enda, Drottinn með verkfæri reiði sinnar, til þess að leggja í eyði gjörvalla jörðina.

Kveinið, því að dagur Drottins er nálægur; hann kemur sem eyðing frá hinum almátka.

Þess vegna verða allar hendur lémagna og sérhvert mannshjarta bráðnar.

Þeir skelfast, harmkvæli og þrautir gagntaka þá; þeir hafa hríðir eins og jóðsjúk kona; angistarfullir stara þeir hver á annan; andlit þeirra eru sem eldslogi.

Sjá, dagur Drottins kemur, grimmilegur, með heift og brennandi reiði, til að gjöra jörðina að auðn og afmá syndarana af henni.

Því að stjörnur himinsins og stjörnumerkin láta eigi Jjós sitt skína; sólin er myrk í uppgöngu sinni og tunglið ber eigi birtu sína.

Eg vil hegna jarðríki fyrir ilsku þess og hinum óguðlegu fyrir misgjörðir þeirra; eg vil niðurkefja ofdramb hinna ríkilátu og lægja hroka ofbeldismannanna.

Eg vil láta menn verða sjaldgæfari en skíragull og mannfólkið torgætara en Ófir-gull.

Þess vegna vil eg hrista himininn, og jörðin skal hrærast úr stöðvum sínum fyrir heift Drottins hersveitanna og á degi hans brennandi reiði.

Eins og fældar skógargeitur og eins og smalalaus hjörð skulu þeir hverfa aftur, hver til sinnar þjóðar, og flýja hver heim í sitt land.

S Hver, sem staðinn verður, mun lagður verða í gegn, og hver, sem gripinn verður, mun fyrir sverði falla.

Ungbörnum þeirra mun slegið verða niður við fyrir augum þeirra, hús þeirra verða rænd og konur þeirra smánaðar.

Sjá, eg æsi upp Medíumenn gegn þeim; þeir meta einskis silfrið og þá langar ekki í gullið.

Bogar þeirra rota unga menn til dauðs og þeir þyrma ekki lífsafkvæmum; þeir lifa ekki miskunnaraugum til ungbarna.

BSvo skal fara fyrir Babel, þessari prýðj konungsríkjanna og drembidjásni Iíaldea, sem þá er Guð umturnaði Sódómu og Gómorru.

Hún skal aldrei framar af mönnum bygð vera; kynslóð eftir kynslóð skal þar enginn búa; enginn Arabi skal slá þar tjöldum sínum og engir hjarðmenn bæta þar fénað sinn.

Urðarkettir skulu liggja þar og húsin fyllast af uglum; strútsfuglar skulu halda þar til og skógartröll stökkva þar um.

Sjakalar skulu kallast á í höllunum og úlfar í bílífis-sölunum. Tími hennar nálægist og dagar hennar munu eigi undan dragast.