Jesajabók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 12

Á þeim degi skaltu segja: »Eg vegsama þig Drottin, því þótt þú værir mér reiður, þá er þó horfin reiði þín og þú huggaðir mig.

Sjá, Guð er mitt hjálpræði; eg er öruggur og óttast eigi, því að Jah, Drottinn er minn styrkur og minn lofsöngur, hann er orðinn mér hjálpræði«.

Og þér munuð með fögnuði vatn ausa úr lindum hjálpræðisins;

og á þeim degi munuð þér segja: »Lofið Drottin, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum, að háleitt er nafn hans.

Lofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefir hann gjört; þetta skal kunnugt verða um alla jörðina.

Lát óma gleðihljóm og kveða við fagnaðaróp, þú sem býr á Zíon, því að mikill er hinn Heilagi í Ísrael meðal þín«.