Gamla testamentiðSpámennirnir
Ó að höfuð mitt væri vatn og augu mín táralind, þá skyldi eg gráta daga og nætur þá, er fallið hafa af þjóð minni.
að eg hefði sæluhús í eyðimörkinni, þá skyldi eg yfirgefa þjóð mína og fara burt frá þeim, því að allir eru þeir hórdómsmenn, flokkur svikara.
Þeir spenna tungu sína eins og boga sinn; með lygi, en eigi með sannleika, hafa þeir náð völdum í landinu; því að frá einni vonzkunni ganga þeir til annarrar, en mig þekkja þeir ekki — segir Drottinn.
Varið yður hver á öðrum og treystið engum bróður, því að sérhver bróðir heitir undirferli og sérhver vinur gengur með róg.
Þeir blekkja hver annan og sannleika tala þeir ekki; þeir venja tungu sína á að tala lygi, kosta kapps um að gjöra rangt.
Þú býr mitt á meðal svika; vegna svika vilja þeir ekki þekkja mig — segir Drottinn.
TFyrir því segir Drottinn hersveilanna svo: Sjá, eg vil hreinsa þá og reyna þá; því að hvernig ætti eg að fara öðruvísi að andspænis ilsku þjóðar minnar?
Tunga þeirra er deyðandi ör; svik tala þeir; með munninum tala þeir vingjarnlega við náunga sinn, en í hjarta sínu sitja þeir á svikráðum við hann.
Ætti eg ekki að hegna slíkum mönnum — segir Drottinn — eða hefna mín á Annari eins þjóð og þessari?
Á fjöllunum vil eg hefja grát og harmakvein, og sorgarljóð á beitilöndunum í öræfunum; því að þau eru sviðin, svo að enginn fer þar um framar og menn heyra eigi framar baul hjarðanna: bæði fuglar himinsins og villidýrin eru flúin, farin.
Og eg vil gjöra Jerúsalem að grjóthrúgum, að sjakalabæli, og Júdaborgir vileg gjöra að auðn, þar sem enginn býr.
Hver er svo vitur maður, að hann skilji þetta? og hver er sá, er munnur Drottins hafi talað við, svo að hann megi kunngjöra, hvers Vegna landið er gjöreytt, sviðið eins og eyðimörk, sem enginn fer um?
En Drottinn sagði: Af því að þeir hafa yfirgefið lögmál mitt, sem eg Setti þeim, og ekki hlýtt minni raustu og ekki farið eftir henni,
heldur farið eftir þverúð hjarta síns og elt Baalana, er feður þeirra höfðu kent þeim að dýrka,
þess vegna, — svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð — vil eg gefa þeim, þessum lýð, malurt að eta og eiturvatn að drekka,
og tvístra þeim meðal þjóða, sem hvorki þeir né feður þeirra hafa þekt, og senda sverðið á eftir þeim, þar til er eg hefi gjöreytt þeim.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Takið eftir og kallið til harmkonur, að þær komi, og sendið til hinna vitru kvenna, að þær komi
og hraði sér að hefja harmakvein yfir oss, til þess að augu vor fljóti í tárum og vatnið streymi af hvörmunum.
Því að hátt harmakvein heyrist frá Zíon: Hversu erum vér eyðilagðir, mjög til skammar orðnir; því að vér höfum orðið að yfirgefa landið, af því að þeir hafa brotið niður bústaði vora.
Já, heyrið, þér konur, orð Drottins, og eyra yðar nemi orð hans munns, og kennið dætrum yðar harmaljóð og hver annarri sorgarkvæði!
Því að dauðinn er stiginn upp í glugga vora, kominn inn í hallir vorar, til þess að afmá börnin af götunum, unglingana af torgunum.
Og líkin af mönnunum liggja eins og hlöss á velli og eins og kornbundin að baki kornskurðarmanninum, sem enginn tekur saman.
Svo segir Drottinn: Hinn vitri hrósi sér ekki af vizku sinni og hinn sterki hrósi sér ekki af styrkleika sínum og hinn auðugi hrósi sér ekki af auð sínum,
heldur hrósi hver sér af því, sá er vill hrósa sér, að hann sé hygginn og þekki mig, að það er eg, Drottinn, sem auðsýni miskunnsemi, rétt og réttlæti á jörðunni, því að á slíku hefi eg velþóknun —
Sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að eg mun hegna öllum umskornum, sem þó eru óumskornir:
fí Egiptalandi, Júda, Edóm, Ammónítum, Móah og öllum jaðarskornum, þeim er búa í eyðimörkinni, — því að allir heiðingjar eru óumskornir og alt Ísraels hús er óumskorið á hjarta.