Jeremíabók 51Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 51

Svo segir Drottinn: Sjá, eg vek hugmóð eyðanda nokkurs gegn Babel og gegn íbúum Kaldeu

og sendi vinzara gegn Babel, að þeir vinzi hana og tæmi land hennar. Þegar þeir umkringja hana á óheilladegi,

skal enginn benda boga sinn né reigja sig í panzara sínum. Hlífið ekki æskumönnum hennar, helgið banni allan her hennar,

svo að vegnir menn falli í landi Kaldea og sverði lagðir á strætum hennar.

Því að Ísrael og Júda er ekki yfirgefinn af Guði sínum, Drottinn hersveitanna, af því að land þeirra er full af sekt gegn hinum Heilaga í Ísrael.

Flýið út úr Babel og hver og einn forði lífi sínu. Látið eigi tortíma yður vegna misgjörða hennar; því að það er hefndartími Drottins; hann endurgeldur henni eins og hún hefir til unnið.

Babel var gullbikar í hendi Drottins, er gjörði alla jörðina drukna; af vini hennar drukku þjóðirnar, fyrir því létu þjóðirnar sem þær væru óðar.

SSviplega er Babel fallin og sundurmoluð; kveinið yfir henni! Sækið smyrsl við kvölum hennar; má vera að hún verði læknuð.

Ís Ver ætluðum að lækna Babel, en hún var ólæknandi; yfirgefið hana, og förum hver til síns lands; því að refsidómur sá, er yfir hana gengur, nær tl himins og gnæfir við ský.

Drottinn hefir leitt í ljós vort réttláta málefni; komið, vér skulum kunngjöra í Zíon verk Drottins, Guðs vors!«

Fægið örvarnar, takið á yður skjölduna! Drottinn hefir vakið hugmóð Medíu-konunga; því að fyrirætlan hans er miðuð gegn Babel, til þess að eyða hana; því að það er hefnd Drottins, hefnd fyrir musteri hans.

Reisið merki gegn Babel-múrum! Aukið vörðinn! Skipið verði! Setjið launsátur! Því að Drottinn hefir ákveðið og framkvæmir það, er hann hefir hótað Babel-búum.

Þú, sem býr við hið mikla vatnsfall, auðug að fjársjóðum, — endadægur þitt er komið, alinin, þegar þig skal af skera.

Drottinn hersveitanna sver við sjálfan sig: Þótt eg hefði fylt þig mönnum, eins og engisprettum, munu menn þó hefja siguróp yfir þér.

Hann, sem gjört hefir jörðina með krafti sínum, skapað heiminn af speki sinni og þanið út himininn af hyggjuviti sínu, —

Þegar hann þrumar, svarar vatnagnýr í himninum, og hann lætur ský uppstíga frá endimörkum jarðar, hann gjörir leiftur til þess að búa rás regninu og hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.

Sérhver maður stendur undrandi og skilur þetta ekki; sérhver gullsmiður hlýtur að skammast sín fyrir líkneski sitt, því að hin steyptu líkneski hans eru tál og í þeim er enginn andi;

hégómi eru þau, háðungar-smíði; þegar hegningartími þeirra kemur, er úti um þau.

En hlutdeild Jakobs er ekki þeim lík, heldur er hann skapari alls, og Ísrael er hans eignarkynkvísl; Drottinn hersveitanna er nafn hans.

Þú varst mér hamar, hervopn, til þess að eg gæti molað sundur með þér þjóðir og eytt með þér konungsríki,

til þess að eg gæti molað sundur með þér hesta og reiðmenn, til þess að eg gæti molað sundur með þér vagna og þá, sem í þeim óku,

í þess að eg gæti molað sundur með þér karla og konur, til þess að eg gæti molað sundur með þér gamla og unga, til þess að eg gæti molað sundur með þér æskumenn og meyjar,

til þess að eg gæti molað sundur með þér hirða og hjarðir, til þess að eg gæti molað sundur með þér akurmenn og sameyki þeirra, til þess að eg gæti molað sundur með þér jarla og landstjóra!

En eg endurgeld Babel og öllum íbúum Kaldeu alt það út, er þeir hafa gjört Zion að yður áhorfandi — segir Drottinn.

Sjá, eg ætla að finna þig, þú Skaðræðisfjall — segir Drottinn — þú sem skaðræði vanst allri jörðinni, og eg útrétti hönd mína gegn þér og velti þér ofan af hömrunum og gjöri þig að brendu fjalli;

úr þér skulu menn ekki sækja hornsteina, né undirstöðusteina, heldur skalt þú verða að eilifri auðn — segir Drottinn.

Reisið merki á jörðinni! Þeytið lúðurinn meðal þjóðanna! Vígið þjóðir móti henni! Kallið móti henni konungsríki Ararats, Minní og Askenas! Skipið herforingja móti henni! Færið fram hesta, líka byrstum engisprettum!

Vígið þjóðir móti henni, konunga Medíu, jarla hennar og landstjóra og alt land ríkis þeirra.

Þá nötrar jörðin og bifast, því að fyrirætlanir Drottins gegn Babel rætast, með því að hann gjörir Babel-land að auðn, svo að enginn býr þar.

Kappar Babel hætta við að berjast, halda kyrru fyrir í virkjunum, hreysti þeirra er þorrin, þeir eru orðnir að konum; menn hafa lagt eld í híbýli hennar, slagbrandar hennar eru brotnir.

Hlaupasveinn hleypur móti hlaupasveini og sendiboði móti sendiboða, til þess að boða Babel-konungi að borg hans sé unnin öllumegin,

brýrnar teknar, sefmýrarnar brendar í eldi og hermennirnir skelfdir.

Já, svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Dóttirin Babel líkist láfa á þeim tíma, þá er hann er troðinn; innan skamms kemur og uppskerulími fyrir hana.

»Nebúkadrezar Babel-konungur hefir etið oss, hefir eytt oss; hann gjörði úr oss tómt ílát, svalg oss eins og dreki, kýldi vömb sína og rak oss burt úr unaðslandi voru!«

Það ofljeldi og sú misþyrming, sem eg hefi orðið fyrir, komi yfir Bahel — segi Zíonbúar —, og blóð mitt yfir íbúa Kaldeu — segi Jerúsalem.

Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, og tek að mér málefni þitt og hefni fyrir þig; eg þurka upp vatn hennar og læt uppsprettu hennar þorna.

Babel skal verða að grjóthrúgu, að sjakalabæli, að skelfing og háði, enginn skal þar búa.

Þeir öskra allir eins og ung ljón, gnöllra eins og ljónshvolpar.

En þegar græðgihitinn er kominn í þá, vil eg búa þeim veizlu og gjöra þá drukna, til þess að þeir verði kátir; því næst skulu þeir sofna eilífum svefni og ekki vakna framar! — segir Drottinn.

Eg læt þá hníga sem lömb til slátrunar, sem hrúta ásamt höfrum.

Hversu varð Sesak unnin og tekin, hún er fræg var um víða Veröld! Hversu er Babel orðin að skelfingu meðal þjóðanna!

Sjór-. Inn gekk yfir Babel, hún huldist gnýjandi bylgjum hans;

borgir hennar urðu að auðn, að þurru landi og heiði; enginn maður mun framar búa þar né nokkurt mannsbarn fara þar um.

Og eg vitja Bels í Babel og tek út úr munni hans það, er hann hefir gleypt, og eigi skulu þjóðir framar streyma til hans. Babel-múr hrynur einnig.

Far út úr henni, lýður minn, og hver og einn forði lífi sínu undan hinni brennandi reiði Drottins.

Látið ekki hugfallast og verðið ekki hræddir við tíðindin, sem heyrast í landinu, og þegar þessi tíðindi koma Þetta árið og því næst önnur tíðindi annað árið, og ofbeldi er framið í landinu og drotnari rís mót drolnara.

Fyrir því, sjá, þeir dagar koma, að eg vitja skurðgoða Babel, og þá mun alt land hennar verða til Skammar og allir vegnir menn hennar falla inni í henni.

Þá mun himinn og jörð og alt, sem í þeim er, hlakka yfir Babel; því að úr Morðri brjótast eyðendurnir inn yfir hana — segir Drottinn.

Babel verðog að falla, þér Ísraels vegnu menn, eins og vegnir menn hafa orðið falla um alla jörðina vegna Babel.

Þér, sem undan sverðinu hafið komist, haldið þér áfram, standið ekki við. Minnist Drottins í fjarlægð og hafið Jerúsalem í huga.

Vér erum orðnir til skammar, því að vér urðum varir við fyrirlitningu; blygðun hylur auglit vor, því að útlendir menn hafa brotist inn yfir helgidóma musteris Drottins.

Fyrir því, sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn —, að eg vitja skurðgoða hennar, og sverði lagðir menn skulu stynja í öllu landi hennar.

ó að Babel hefji sig til himins og þó að hún gjöri vígi sitt svo hátt, að það verði ókleift, þá munu þó frá mér koma eyðendur yfir hana — segir Drottinn.

Heyr, neyðarkvein frá Babel og mikil eyðilegging úr landi Kaldea!

Já, Drottinn eyðir Babel og upprætir úr henni hinn mikla hávaða; bylgjur þeirra gnýja eins og stór vötn; gjallandi kveður við óp þeirra.

Því að eyðandi kemur yfir hana, yfir Babel, og kappar hennar verða teknir höndum og bogar þeirra brotnir; því að Drottinn er Guð endurgjaldsins, hann borgar áreiðanlega.

En eg gjöri drukna höfðingja hennar og vitringa, jarla hennar og landsljóra, og kappa hennar, og þeir skulu sofna eilífum svefni og eigi vakna framar — segir konungurinn; Drottinn hersveitanna er nafn hans.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Hinn víði Babel-múr skal rifinn verða til grunna og hin háu borgarhlið hennar brend í eldi, — já, lýðir vinna fyrir gýg og þjóðir leggja á sig erfiði fyrir eldinn!

Skipunin, sem Jeremía spámaður lagði fyrir Seraja Neríason, Mahasejasonar, þá er hann fór í erindum Zedekía Júdakonungs til Babel, á fjórða ári ríkisstjórnar hans; en Seraja var ferðamarskálkur.

En Jeremía skrifaði alla þá ógæfu, er koma mundi yfir Babel, í eina bók — allar þessar ræður, sem ritaðar eru um Babel.

Og Jeremía sagði við Seraja: Þá er þú kemur til Babel, þá sjá til, að þú lesir upp öll þessi orð,

og seg: Drottinn, þú hefir sjálfur hótað þessum stað að afmá hann, svo að enginn byggi framar í honum, hvorki menn né skepnur, því — að eilífri auðn skal hún verða.

Og þegar þú hefir lesið bók þessa til enda, þá bind þú við hana stein og kasta þú henni út í Evfrat,

og seg: Svo skal Babel sökkva og ekki rísa upp aftur, vegna þeirrar ógæfu, er eg læt yfir hana koma! Hingað ná orð Jeremía.