Jeremíabók 50Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 50

Orðið, sem Drottinn talaði um Babel, um land Kaldea, fyrir munn Jeremía spámanns.

Kunngjörið það meðal þjóðanna og boðið það og setjið upp merki! Boðið það, dyljið það ekki! Segið: Babel er unnin, Bel orðinn til skammar, Meródak niðurbrotinn; líkneski hennar eru orðin til skammar, skurðgoð hennar niðurbrotin.

Því að þjóð kemur á móti henni úr norðurátt, — hún gjörir land hennar að auðn, svo að enginn maður býr þar framar; bæði menn og skepnur flýja, fara burt.

Á þeim dögum og á þeim tíma — segir Drottinn — munu Ísraelsmenn koma, ásamt Júdamönnum; grátandi munu þeir ganga og leita Drottins, Guðs þeirra.

Eftir Zíon munu þeir spyrja, þangað stefna þeir; þeir koma og ganga Drottin á hönd með eilífum sáttmála, sem ekki mun gleymast.

Þjóð mín var sem týndir sauðir; hirðar þeirra leiddu þá afvega, tældu þá upp Í fjöll; þeir reikuðu af hálsi á hæð, gleymdu bóli sínu.

Allir, sem hittu þá, átu þá, og mótstöðumenn þeirrasögðu: Vér bökum oss enga sekt! -— fyrir það að þeir syndguðu gegn Drottni, haglendi réttlætisins og von feðra þeirra, Drottinn.

Flýið burt úr Babel og farið burt úr landi Kaldea og verið sem hafrar á undan hjörðinni.

Því að sjá, eg læt upp rísa og móti Babel fara safn mikilla þjóða frá norðlægum löndum, og þær munu skipa sér móti henni; þaðan mun hún unnin verða. Örvar þeirra eru eins og giftusöm hetja, er ekki hverfur aftur við svo búið.

Og Kaldea skal verða að herfangi, allir, sem hana ræna, fá nægju sína — segir Drottinn.

Já gleðjist, já fagnið, þér ránsmenn eignar minnar, — já stökkvið eins og þreskjandi kvíga og hvíið eins og stóðhestar.

Móðir yðar verður mjög til skammar, hún, sem ól yður, má fyrirverða sig, — sjá, hin síðasta meðal þjóðanna, eyðimörk, þurt land, hefði!

Vegna reiði Drottins mun hún verða óbygð og verða algjörlega að auðn; hvern, sem fer fram hjá Babel, mun hrylla við og hann mun hæðast að öllum áföllunum, sem hún hefir orðið fyrir.

Skipið yður niður kring um Babel, allir þér bogmenn! Skjótið á hana, sparið ekki örvarnar; því að gegn Drottni hefir hún syndgað.

Ljóstið upp ópi hringinn í kring um hana: Hún hefir gefist upp, stoðir hennar eru fallnar, múrar hennar niður rifnir, því að það er hefnd Drottins. Hefnið yðar á henni. Gjörið við hana eins og hún hefir til gjört.

Afmáið í Babel sáðmanninn og þann, er sigðina ber um uppskerutímann. Fyrir hinu vígfreka sverði munu þeir hver og einn hverfa til sinnar þjóðar og flýja hver og einn til síns lands.

Ísrael er sem burtflæmdur sauður, er ljón hafa elt: fyrst át Assýríu-konungur hann og nú síðast hefir Nebúkadrezar Babel-konungur nagað bein hans.

Fyrir því segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð, svo: Sjá, eg vitja Babel-konungs og lands hans, eins og eg vitjaði Assýriu-konungs,

og leiði Ísrael aftur heim í haglendi sitt, og hann skal vera á beit á Karmel og í Basan og seðja hungur sitt á Efraím-fjöllum og í Gíleað.

Á þeim dögum og á þeim tíma — segir Drottinn — mun leitað verða að sekt Ísraels, en hún er ekki framar til, og að syndum Júda, en þær finnast ekki; því að eg mun fyrirgefa þeim, sem eg læt eftir verða.

Móti Tvíuppreisnarlandi — far móti því og gegn íbúum Hegningarborgar; eyð þeim og helga þá banni — segir Drottinn — og gjör með öllu svo sem eg hefi fyrir þig lagt.

Heyr, stríð í landinu og mikil eyðilegging!

Hversu er hamarinn, sem laust alla jörðina, höggvinn af skafti og sundurbrotinn! Hversu er Babel orðin að skelfingu meðal þjóðanna!

Eg lagði snöru fyrir þig og þú festist, Babel, og vissir ekki af. Þú náðist og þú varst gripin, því að þú hafðir dirfst að berjast gegn Drottni.

Drottinn hefir lokið upp vopnabúri sínu og tekið út vopn reiði sinnar, því að Drottinn, Drottinn hersveitanna, hefir verk með höndum í landi Kaldea.

Komið móti henni úr öllum áttum, ljúkið upp hlöðum hennar, kastið henni eins og hundinum í bing og helgið hana banni! Látið engar leifar af henni eftir verða!

Drepið alla uxa hennar, - þeir skulu hníga niður til slátrunar. Vei þeim, því að dagur þeirra er kominn, hegningartími þeirra.

Heyr, hér eru menn, sem flúið hafa og komist undan frá Babel-landi, til þess að boða í Zíon að Drottinn, Guð vor, hefnir, hefnir fyrir musteri sitt.

Bjóðið skyttum út gegn Babel, öllum þeim sem benda boga! Setjið herbúðir alt í kring um hana! Látið engan komast undan! Gjaldið henni eftir verkum hennar! Gjörið við hana að öllu svo sem hún hefir til gjört; því að hún hefir ofmetnast gegn Drottni, gegn hinum Heilaga í Ísrael.

Fyrir því skulu æskumenn hennar falla á torgunum og allir hermenn hennar farast á þeim degi — segir Drottinn.

Sjá, eg ætla að finna þig, Drambsemi, segir Drottinn, Drottinn hersveitanna —; því að dagur þinn er kominn, hegningartími þinn.

Nú skal Drambsemi hrasa og falla, og enginn skal reisa hana á fætur, Og eg mun leggja eld í borgir hennar og hann skal eyða öllu því, sem umhverfis hana er.

Svo segir Drottinn hersveitanna: Kúgaðir eru Ísraelsmenn og Júdauienn allir saman, og allir þeir, er þá hafa herleitt, halda Þeim föstum, vilja ekki láta Þá lausa.

En lausnari þeirra er sterkur, — Drottinn hersveitanna heitir hann; hann mun reka mál þeirra með dugnaði, til Þess að hann speki jörðina, en óspeki Babel-búa.

Sverð komi yfir Kaldea — segir Drottinn — og yfir Babel-búa og yfir höfðingja hennar og vitringa!

sverð komi yfir þvaðrarana, svo að þeir standi eins og Afglapar! Sverð komi yfir kappa hennar, svo að þeir verði huglausir!

Sverð komi yfir hesta hennar og vagna og yfir allan þjóðblendinginn, sem í henni er, svo að þeir verði að konum! Sverð komi yfir fjársjóðu hennar, svo að þeim verði rænt!

Sverð komi yfir vötn hennar, svo að þau þorni! Því að skurðgoðaland er það, og þeir láta sem Vitfirringar með skelfingar-líkneskin.

Fyrir því munu urðarkettir búa hjá sjökulum og strútsfuglar búa í henni; og hún skal ekki framar bygð vera að eilífu, né þar verða búið frá kyni til kyns.

Eins og Guð umturnaði Sódómu og Gómorru og nágrannaborgunum — segir Drottins —, svo skal og enginn maður búa þar né nokkurt mannsbarn hafast við í henni.

Sjá, lýður kemur úr norðurátt og mikil þjóð og voldugir konungar rísa upp á útkjálkum jarðar.

Þeir bera boga og skotspjót; þeir eru grimmir og sýna enga miskunn; háreysti þeirra er sem hafgnýr, og þeir ríða hestum, búnir sem hermenn til bardaga gegn þér, dóttir Zíon.

Babel-konungur hefir fengið fregnir af þeim; hendur hans eru magnlausar, angist hefir gripið hann, kvalir, eins og jóðsjúka konu,

Sjá, eins og ljón, sem kemur út úr kjarrinu á Jórdanbökkum Og stígur upp á sígrænt engið, svo mun eg skyndilega reka þá burt Þaðan, og hvern þann, sem útvalinn er, mun eg setja yfir hana. Því að hver er minn líki? og hver vill stefna mér? og hver er sá hirðir, þér fái staðist fyrir mér?

Heyrið því ráðsályktun Drottins, er hann hefir gjört viðvíkjandi Babel, og þær fyrirætlanir, er hann hefir í huga viðvíkjandi landi Kaldea: Sannarlega munu þeir draga þá burt — hina dilmótlegustu úr hjörðinni. Sannarlega skal haglendið verða agndofa yPi’ þeim.

Af ópinu: »Babel er unnin« nötrar jörðin, og neyðarkvein heyrist meðal þjóðanna.