Gamla testamentiðSpámennirnir
Svo segir Drottinn: Á þá Ísrael enga sonu, eða á hann engan erfingja? Hví hefir Milkóm erft Gað og hví hefir lýður hans sezt að í borgum hans?
Fyrir því, sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að eg læt heróp heyrast til Rabba, borgar Ammóníta, og hún skal verða að grjóthrúgu og dæturnar eyðast í eldi, og þá skal Ísrael erfa aftur erfingja sína, segir Drottinn.
Hljóða þú, Hesbon, yfir því að borgin er unnin! Kveinið Rabbadætur! Gyrðist hærusekk, harmið og reikið um innan fjárgirðinganna; því að Milkóm verður að fara í útlegð, prestar hans og höfðingjar hverjir með öðrum.
Hví stærir þú þig af dölunum, af frjósemi dals þíns, fráhverfa dóttir, sem reiðir sig á fjársjóðu sína og segir: Hver skyldi ráða á mig?
Sjá, eg læt skelfingu koma yfir þig — segir Drottinn, Drottinn hersveitanna — úr öllum áttum í kring um þig; og þér skuluð verða reknir brott, hver það sem horfir, og enginn safnar þeim saman, er flýja.
En síðar meir mun eg leiða heim aftur hina herleiddu af Ammónítum — segir Drottinn.
Um Edóm. Svo segir Drottinn hersveitanna: Er þá engin vizka framar í Teman? Eru góð ráð horfin hinum hygnu, er vizka þeirra þrotin?
Flýið, hverfið brott, felið yður djúpt niðri, þér íbúar Dedans! Því að Esaús glötun læt eg yfir hann koma, þá er eg hegni honum.
Ef vínlestursmenn ráðast á þig, þá skilja þeir ekki neinn eftirtíning eftir; ef þjófar koma að þér á náttarþeli, þá skemma þeir, þar til er þeim nægir.
En af því að eg sjálfur afhjúpa Esaú, gjöri ber fylgsni hans, svo að hann getur ekki falið sig, þá verða niðjar hans unnir og frændþjóðir hans og nábúar, og úti er um hann.
Yfirgef munaðarleysingja þína, — eg mun halda lífinu í þeim, og ekkjur þínar mega reiða sig á mig!
Já, svo segir Drottinn: Sjá, þeim sem eigi bar að drekka bikarinn, þeir urðu að drekka hann — og þú ættir að sleppa óhegndur? Þú munt ekki sleppa óhegndur, heldur skalt þú drekka.
Því að eg sver við sjálfan mig — segir Drottinn —, að Bozra skal verða að skelfing, háðung, undrun og formæling, og allar borgir hennar skulu verða að eilífum rústum.
Eg hefi fengið vitneskju frá Drottni og boðberi er sendur meðal þjóðanna! Safnist saman og farið gegn honum og búist til bardaga!
Því sjá, eg vil gjöra þig lítinn meðal þjóðanna, fyrirlitinn meðal mannanna.
Skelfing komi yfir þig! Á tálar hefir þig dregið hroki hjarta þíns, þú sem átt hygð í klettaskorum, situr á háa hnúknum. Þó að þú bygðir hreiður þitt hátt, eins og örninn, þá steypi eg þér þaðan niður — segir Drottinn.
Og Edóm skal verða að skelfingu; hver sem fer þar um mun skelfast og hæðast að öllum áföllunum, er hann hefir orðið fyrir.
Eins og Sódómu og Gómorru og nágrannaborgunum var umturnað, segir Drottinn, svo skal og enginn maður búa þar, né nokkurt mannsbarn hafast þar við.
Sjá, eins og ljón, sem kemur út úr kjarrinu á Jórdanbökkum Og stígur upp á sígrænt engið, svo mun eg skyndilega reka þá burt Þaðan, og hvern þann, sem útvalinn er, mun eg setja yfir hana. Því að hver er minn líki? og hver vill stefna mér? og hver er sá hirðir, þér fái staðist fyrir mér?
Heyrið því ráðsályktun Drottins, er hann hefir gjört viðvíkjandi Edóm, og þær fyrirætlanir, er hann hefir í huga viðvíkjandi Teman-búum: Sannarlega munu þeir draga þá burt — hina lítilmótlegustu úr hjörðinni. Sannarlega skal haglendi þeirra verða agndofa yfir þeim.
Af dyn falls þeirra nötrar jörðin; neyðarkveinið -- ómurinn af því heyrist við Rauðahafið.
Sjá, sem örn stígur hann upp og flýgur hingað og breiðir út vængi sína yfir Bozra, og hjarta Edóms kappa mun á þeim degi verða eins og hjarta konu, sem er í barnsnauð.
Um Damaskus. Hamat og Arpad eru agndofa, því að þær hafa spurt ill tíðindi; þær eru hræddar, fullar af óró, eins og hafið, sem getur ekki verið kyrt.
Damaskus er orðin huglaus, hefir snúist á flótta, og ótti hefir gripið hana; angist og kvalir hafa altekið hana, eins og jóðsjúka konu.
Hví var hún ekki yfirgefin, hin vegsamaða borg, ununar-borgin mín?
Fyrir því verða nú æskumenn hennar að falla á torgunum og allir hermenn hennar að farast á þeim degi — segir Drottinn hersveitanna.
Og eg kveiki eld við múra Damaskus, til þess að hann eyði höllum Benhadads.
Um Kedar og konungsríki Hazórs, er Nebúkadrezar Babel-konungur vann. Svo segir Drottinn: Standið upp, farið á móti Kedar og herjið á austurbyggja.
Tjöld þeirra og sauði munu þeir taka, og tjalddúka þeirra og öll áhöld og úlfalda þeirra munu þeir flytja burt frá þeim; þá munu menn hrópa yfir þeim: Skelfing alt um kring!
Leggið á flótta, flýið sem hraðast, felið yður djúpt niðri, þér íbúar Hazórs — segir Drottinn; því að Nebúkadrezar Babel-konungur hefir gjört ráðsályktun gegn yður og hefir í huga ráðagjörð gegn yður.
Af stað! farið á móti meinlausri þjóð, sem býr örugg — segir Drottinn —, og hvorki hefir hurðir né slagbranda; þeir búa einir sér.
Úlfaldar þeirra skulu verða að ránfeng og mergð nautahjarða þeirra að herfangi, og eg mun dreifa þeim fyrir öllum vindum, þeim hinum jarðarskornu, og láta ógæfu hvaðan æfa yfir þá koma — segir Drottinn.
Og Hazór skal verða að sjakalabæli, að auðn um eilifð; enginn maður mun framar búa þar og ekkert mannsbarn hafast þar við.
Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um Elam í upphafi ríkisstjórnar Zedekía Júdakonungs:
Svo segir Drottinn hersveitanna: Sjá, eg brýt sundur loga Elamíta, meginstyrk þeirra.
Og eg hleypi á Elamíta fjórum vindum úr fjórum áttum himins og tvístra þeim fyrir öllum þessum vindum, og engin skal sú þjóð til vera, að þangað komi ekki flóttamenn frá Elam.
Og eg læt Elamíta skelfast fyrir óvinum þeirra og fyrir þeim, er sækjast eftir lífi þeirra, og leiði yfir þá óhamingju, mína brennandi reiði — segir Drottinn — og sendi sverðið á eftir þeim, unz eg hefi gjöreytt þeim.
Og eg reisi hásæti mitt í Elam og eyði þaðan konungi og höfðingjum — segir Drottinn.
En þá er fram líða stundir mun eg snúa við högum Elams — segir Drottinn.