Gamla testamentiðSpámennirnir
Um Móab. Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Vei yfir Nebó, því að hún er eydd, orðin til skammar, Kirjataím er unnin; háborgin er orðin til skammar og skelfd.
Frægð Móabs er farin. Í Hesbon brugga menn ilt ráð gegn borginni: »komið, vér skulum uppræta hana, svo að hún sé eigi framar þjóð!« Einnig þú, Madmen, munt gjöreydd verða, sverðið eltir þig!
Neyðarkvein heyrist frá Hórónaím: eyðing og ógurleg tortíming!«
Móab er í eyði lagður; þeir láta neyðarkvein heyrast alt til Zóar;
því að grátandi ganga þeir upp stíginn hjá Lúkít, já, í hlíðinni hjá Hórónaím heyra menn neyðarkvein tortímingarinnar.
Flýið, forðið lífi yðar, og verðið eins og einirunnur Í eyðimörkinni!
Já, af því að þú reiddir þig á káksmíðar þínar og fjársjóðu þína, verður þú og unnin, og Kamos verður að fara í útlegð, prestar hans og höfðingjar hver með öðrum.
Og eyðandinn kemur yfir hverja borg, engin borg kemst undan. Dalurinn ferst og sléttlendið eyðileyst, eins og Drottinn hefir sagt.
Fáið Móab vængi, því að á flugferð skal hann brott fara; og borgir hans skulu verða að auðn og enginn í þeim búa.
Bölvaður sé sá, sem slælega framkvæmir verk Drottins, og bölvaður sé sá, sem synjar sverði sínu um blóð!
Móab hefir lifað í friði frá æsku og legið í náðum á dreggjum sínum; honum hefir ekki verið helt úr einu kerinu í annað, - og aldrei hefir hann farið í útlegð; fyrir því hefir bragðið af honum haldist og ilmurinn af honum eigi breyzt.
Fyrir því, sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að eg sendi honum tæmendur, sem tæma hann; þeir skulu hella úr kerum hans og mölva sundur krúsir hans.
Þá mun Móab verða til skammar vegna Kamoss, eins og Ísraels hús varð til skammar vegna Betel, er það treysti á.
Hvernig getið þér sagt: Vér erum hetjur og öflugir hermenn?
Eyðandi Móabs og borga hans kemur þegar, og úrval æskumanna hans hnígur niður til slátrunar, segir konungurinn; Drottinn hersveitanna er nafn hans.
Eyðilegging Móabs er komin nærri og óhamingja hans hraðar sér mjög.
Vottið honum hluttekning, allir þér nábúar hans, og allir þér, sem þekkið nafn hans. Segið: Hvernig brotnaði stafurinn sterki, sprotinn dýrlegi!
Stíg niður úr vegsemdinni og sezt í duftið, þú sem þar býr, dóttirin Díbon; því að eyðandi Móabs kemur í móti þér, eyðir vígi þín.
Gakk út á veginn og skygnst um, þú sem býr í Aróer, — spyr flóttamanninn og þá konu, er undan hefir komist, seg: Hvað hefir til borið?
Móab varð til skammar, já skelfdist; hljóðið og kveinið! Kunngjörið hjá Arnon, að Móab sé eyddur.
Já, dómur er genginn yfir sléttu-landið, yfir Hólon og Jahza og Mefaat,
yfir Díbon, Nebó og Bet-Díblataím,
yfir Kirjataím, Bet-Gamúl og Bet-Meon,
yfir Keriót, Bozra og atar borgir Móabslands, fjær og nær.
Horn Móabs er afhöggið og armur hans brotinn, — segir Drottinn.
Gjörið hann drukkinn — því að gegn Drottni hefir hann miklast —, til þess að Móab skelli ofan í spýju sína og verði líka að athlægi.
Eða var Ísrael þér eigi hlátursefni? Var hann gripinn með þjófum, þar sem þú hristir höfuðið í hvert sinn sem þú talar um hann?
Fyrirlátið borgirnar og seljist að í klettaskorum, þér íbúar Móabs, og verið eins og dúfan, sem hreiðrar sig hinumegin á gjárbarminum.
Heyrt höfum vér um drambsemi Móabs — hann er mjög hrokafullur — um hroka hans, drambsemi, ofmetnað og yfirlæti hans.
Já, eg þekki — segir Drottinn — ofsa hans: svo marklaus eru stóryrði hans, svo marklaust það, er þeir gjöra.
Fyrir því kveina eg yfir Móab og hljóða yfir Móab öllum; yfir mönnunum frá Kír-Heres mun andvarpað verða.
Meir en grátið verður yfir Jaser, græt eg yfir þér, vínviður Síbma, greinar þínar fóru yfir hafið, komust til Jaser; á sumargróða þinn og vinberjatekju hefir eyðandinn ráðist.
Fögnuður og kæti er horfin úr aldingörðunum og úr Móabslandi. Vínið læt eg þverra í vínþröngunum, troðslumaðurinn mun eigi framar troða, fagnaðarópið er ekkert fagnaðaróp.
Frá Binni kveinandi Hesbon alt til Eleale, alt til Jahaz láta þeir raust sína glymja, frá Zóar alt til Hórónaím, alt til Eglat-Selísía; því að einnig Nimrímvötn verða að öræfum.
Og eg eyði úr Móab — segir Drottinn — sérhverjum þeim, sem stígur upp á fórnarhæð og færir guði sínum reykelsi.
Fyrir því kveinar hjarta mitt yfir Móab eins og hljóðpípur og hjarta mitt kveinar yfir mönnunum frá Kír-Heres eins og hljóðpípur; fyrir því mistu þeir það, er þeir höfðu dregið saman.
Því að hvert höfuð er sköllótt orðið og alt skegg afrakað; á öllum handleggjum eru skinnsprettur og hærusekkur um mjaðmir.
Uppi á öllum þökum í Móab og á torgunum heyrist ekki annað en harmakvein, því að eg hefi brotið Móab eins og ker, sem engum manni geðjast að, — segir Drottinn.
Hversu er hann skelfdur! Hljóðið! Hversu hefir Móab snúið baki við! Fyrirverð þig! Og Móab skal verða til athlægis og skelfingar öllum nágrönnum sínum.
Því að svo segir Drottinn: Sjá, hann kemur fljúgandi eins og örn og breiðir vængi sína út yfir Móab;
borgirnar eru teknar og vígin unnin, og hjarta Móabs kappa mun á þeim degi verða eins og hjarta konu, sem er í barnsnauð.
En Móab mun afmáður verða, svo að hann verði eigi þjóð framar, því að hann hefir miklast gegn Drottni.
Geigur, gröf og gildra koma yfir þig, Móabsbúi — segir Drottinn.
Sá, sem flýr undan geignum, fellur í gröfina, og sá, sem kemst upp úr gröfinni, festist í gildrunni. Því að þetta leiði eg yfir Móab árið, sem þeim verður hegnt — segir Drottinn.
Í skugga Hesbon nema flóttamenn staðar magnlausir, en eldur brýzt út úr Hesbon og logi úr höll Síhons; hann eyðir þunnvanganum á Móab og hvirflinum á hávaðamönnum.
Vei þér, Móab! Það er úti um lýð Kamoss! Því að synir þínir munu verða fluttir burt til herleiðingar og dætur Þínar hernumdar.
En eg mun snúa við högum Móabs, þá er fram líða stundir — segir Drottinn. Hingað nær dómur Móabs.