Gamla testamentiðSpámennirnir
Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um Filista, áður en Faraó vann Gaza.
svo segir Drottinn: Sjá, vatn kemur streymandi úr norðri og verður að á, sem flæðir yfir; það flóir yfir landið og það, sem í því er, yfir borgir og íbúa þeirra, svo að menn æpa hátt og allir íbúar landsins hljóða.
Vegna dynsins af hófaslappi hesta hans, vegna skröltsins í vögnum hans, glymsins í hjólum hans, líta feðurnir ekki við Ul barna sinna, af því að hendur þeirra eru orðnar lémagna,
vegna dagsins, sem kominn er til að eyða öllum Filistum, til að uppræta fyrir Týrus og Zídon sérhvern hjálparmann, sem enn er eftir. Því að Drottinn mun eyða Filistum, leifum Kaftór-strandar.
Gaza er orðin sköllótt, Askalon í eyði lögð; þér leifar Enakíta, hversu lengi ætlið þér að rista á yður skinnsprettur?
Æ, sverð Drottins, hve lengi ætlar þú að vera hvíldarlaust? Drag þig aftur í slíðrir þínar, still þig og hljóðna!
Hvernig ætti það að hvílast, þar sem Drottinn hefir gefið því skipun? Til Askalon og til strandar hafsins, — þangað hefir hann ætlað því för.