Jeremíabók 46Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 46

Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um þjóðirnar.

Um Egiptaland, viðvíkjandi her Faraós Nekós, Egiptalands konungs, sem var við Evfratfljót, hjá Karkemis, og Nehúkadrezar Babelkonungur vann sigur á, á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, Júdakonungs:

Búið út törgu og skjöld og gangið fram til orustu!

Beitið fyrir hestana og stígið á bak herfákunum og fylkið yður hjálmaðir! Fægið lenzurnar! Klæðist panzara!

Hví sé eg þá skelfda hörfa aftur á bak? Og kappar þeirra eru yfirkomnir af ótta og flýja alt hvað af tekur og líta ekki við, — skelfing alt um kring — segir Drottinn.

Eigi mun hinn frái forða sér, né kappinn komast undan; norður frá, á bökkum Evfrat-fljóts, hrasa þeir og falla.

Hver var það, sem belgdist upp eins og Níl, hvers vötn komu æðandi eins og fljót?

Egiptaland belgdist upp eins og Níl og vötn þess komu æðandi eins og fljót, og það sagði: Eg vil stíga upp, þekja landið, eyða borgir og íbúa þeirra.

Komið, hestar, og æðið, vagnar, og kapparnir leggi af stað, Blálendingar og Pút-menn, sem bera skjöld, og Lúdítar, sem benda boga!

En sá dagur er hefndardagur drotni, Drottinn hersveitanna, að hann hefni sín á mótstöðumönnum sínum. Þá mun sverðið eta og seðjast og drekka sig drukkið af blóði þeirra; því að Drottinn, Drottinn hersveitanna, heldur fórnarhátíð í landinu norður frá, við Evfrat-fljót.

Far upp til Gileað og sæk smyrsl, þú mærin, dóttirin Egiptaland! Til einskis munt þú viðhafa mörg læknislyf, enginn plástur er til handa þér!

Þjóðirnar fréttu smán þína, og jörðin er full af harmakveini þínu, því að einn kappinn hrasaði um annan, féllu báðir jafnsaman.

Orðið, sem Drottinn talaði til Jeremía spámanns, um það að Nebúkadrezar Babel-konungur mundi vinna sigur á Egiptalandi.

Kunngjörið í Egiptalandi og boðið í Migdól, já boðið í Nóf og Tahpanhes, segið: Gakk fram og gjör þig vígbúinn, því að sverðið hefir Þegar etið umhverfis þig!

Hví eru þínir sterku menn að velli lagðb’? Þeir fengu eigi staðist, því að Drottinn kollvarpaði þeim;

hann lét marga hrasa, og þeir féllu hver um annan þveran, svo að þeir sögðu: Á fætur, og hverfum aftur til þjóðar vorrar, til ættlands vors, undan hinu vígfreka sverði!

Þeir munu nefna Faraó, Egiptalands konung: »Tortíming! — hann lét hinn hentuga tíma líða hjá«.

Svo sannarlega Sem eg lifi, segir konungurinn, — Drottinn hersveitanna er nafn hans: Líkur Tabor meðal fjallanna og líkur Karmel við sjóinn mun hann koma.

Gjör þér áhöld til brottfarar, þú sem þar býr, dóttirin Egiptaland; því að Nóf mun verða að auðn og hún mun verða brend og verða mannauð.

Egiptaland er mjög fögur kvíga, kleggjar úr norðri koma Yfir hana.

Jafnvel málaliðið, sem það hefir hjá sér, eins og alikálfa — já, jafnvel það snýr við, flýr alt saman, fær eigi staðist. Því að glötunardagur þeirra er yfir þá kominn, hegningartími þeirra.

Rödd þess er orðin eins og þruskið í höggorminum, sem skríður burt; því með herliði bruna þeir áfram og með öxum ryðjast þeir inn í það, eins og viðarhöggsmenn.

Þeir höggva upp skóg þess — segir Drottinn — því að um hann verður ekki farið; því að þeir eru fleiri en engisprettur og á þá verður engri tölu komið.

Dóttirin Egiptaland Varð til skammar, hún var seld á vald þjóð að norðan.

Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð, segir: Sjá, eg vitja Amóns frá Nó og Faraós og þeirra, sem á hann treysta,

og sel þá á vald þeirra, í sækjast eftir lífi þeirra, og á vald Nebúkadrezars Babel-konungs og í vald þjóna hans. En eftir það skal það bygt vera, eins og fyrri á lögum — segir Drottinn.

óttast þú ekki, þjónn minn Jakob, og hræðst þú ekki, Ísrael, því að eg frelsa þig úr fjarlægu landi og niðja þína úr landinu, þar Ba Þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti »Vildar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.

Óttast þú ekki, þjónn minn Jakob — segir Drottinn — því að eg er með þér! Því að eg vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, er eg hefi rekið þig til; en þér vil eg ekki gjöreyða, heldur vil eg hirta þig í hófi; en eg vil ekki láta þér með öllu óhegnt.