Jeremíabók 45Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 45

Orðið, sem Jeremía spámaður talaði til Barúks Neríasonar, þá er hann skrifaði þessi orð í bókina af munni Jeremía, á fjórða ríkisári Jójakims Jósíasonar, Júdakonungs, svolátandi:

Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, um þig, Barúk:

Þú sagðir: »Vei mér, því að Drottinn bætir harmi við kvöl mína; eg er þreyttur orðinn af andvörpum mínum, og hvíld finn eg enga!«

Svo skalt þú til hans mæla: Svo segir Drottinn: Sjá, það sem eg hefi bygt, rif eg niður, og það, sem eg hefi gróðursett, uppræti eg,

og þá girnist þú svo mikið þér til handa? Girnst það eigi! Því að sjá, eg leiði ógæfu yfir alt hold — segir Drottinn —; en þér gef eg líf þitt að herfangi, hvert sem þú fer.