Gamla testamentiðSpámennirnir
Orðið, sem kom til Jeremía um alla Júða, sem bjuggu í Egiptalandi, þá er bjuggu í Migdól, Tahpanhes, Nóf og í Patróslandi, svo hljóðandi:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Þér hafið séð alla þá óhamingju, sem eg hefi leitt yfir Jerúsalem og yfir allar Júdaborgir, — þær eru nú eyðirústir og enginn maður býr í þeim —
sakir ilsku þeirrar, er þeir höfðu í frammi, að egna mig til reiði með því að fara og færa öðrum guðum reykelsisfórnir, er þeir ekki þektu, hvorki þeir, né þér, né feður yðar.
Og eg sendi til yðar alla þjóna mína, spámennina, bæði seint og snemma, til þess að segja yður: Fremjið eigi slíka svívirðing, sem eg hata!
En þeir hlýddu ekki og lögðu ekki við eyrun, að þeir sneru sér frá vonzku sinni, svo að þeir færðu ekki öðrum guðum reykelsisfórnir.
Þá var heift minni og reiði úthelt, og hún brann í Júdaborgum og á Jerúsalem-strætum, svo að þær urðu að rúst, að auðn, eins og þær nú eru.
Og nú — svo segir Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð: Hví viljið þér gjöra sjálfum yður mikið tjón, með því að uppræta fyrir yður bæði menn og konur, börn og brjóstmylkinga úr Júda, svo að þér látið engar leifar af yður eftir verða,
þar sem þér egnið mig til reiði með handaverkum yðar, þar sem þér færið öðrum guðum reykelsisfórnir í Egiptalandi, þangað sem þér eruð komnir, til þess að dveljast þar sem útlendingar, til þess að þér verðið upprættir og til þess að þér verðið að formæling og spotti meðal allra þjóða á jörðu?
Hafið þér gleymt illgjörðum feðra yðar og illgjörðum Júdakonunga og illgjörðum höfðingja yðar og yðar eigin illgjörðum og illgjörðum kvenna yðar, er framdar hafa verið í Júdalandi og á Jerúsalem-strætum?
Ekki hafa þeir auðmýkt sig enn og ekki hafa þeir óttast né farið eftir lögmáli mínu og setningum, er eg lagði fyrir yður og fyrir feður yðar.
Fyrir því, svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Sjá, eg sný andliti mínu gegn yður til óhamingju, og það til þess að uppræta allan Júda.
Og eg vil hrífa burt Júda-leifar, þá er ásettu sér að fara til Egiptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar; allir skulu þeir farast, falla í Egiptalandi; fyrir sverði og af hungri skulu þeir farast, bæði smáir og stórir; fyrir sverði og af hungri skulu þeir deyja. Og þeir skulu verða að bölvun, að skelfing, að formæling og að spotti.
Og eg mun vitja þeirra, sem búa í Egiptalandi, eins og eg vitjaði Jerúsalem, með sverði, hungri og drepsótt;
og af Júda-leifum, þeim er komnir eru til Egiptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar, skal enginn af bjargast eða undan komast, svo að hann geti horfið aftur til Júdalands, þangað sem þá langar til að hverfa aftur, til þess að búa þar; því að þeir munu eigi hverfa heim aftur, nema fáeinir, sem undan komast.
Þá svöruðu allir mennirnir, sem vissu að konur þeirra færðu öðrum guðum reykelsisfórnir, og allar konurnar, sem stóðu þar í miklum hóp, og allur lýðurinn, sem bjó í Egiptalandi, í Patrós, Jeremía á þessa leið:
Viðvíkjandi því, er þú hefir til vor talað í nafni Drottins, þá ætlum vér ekki að hlýða þér,
heldur ætlum vér að halda með öllu heit það, er vér höfum gjört, að færa himnadrotningunni reykelsisfórnir og dreypifórnir, eins og vér gjörðum og feður vorir, konungar vorir og höfðingjar vorir í Júdaborgum og á Jerúsalem-strætum; þá höfðum vér nægð brauðs og oss leið vel og vér litum enga óhamingju.
En síðan vér hættum að færa himnadrotningunni reykelsisfórnir og dreypifórnir, hefir oss skort alt og vér höfum farist fyrir sverði og af hungri.
Og þar sem vér nú færum himnadrotningunni reykelsisfórnir og dreypifórnir — er það án vilja og vitundar manna vorra, að vér gjörum henni kökur, til þess að gjöra þann veg mynd af henni, og færum henni dreypifórnir?
Þá mælti Jeremía á þessa leið til alls lýðsins, til karlmannanna og kvennanna og til alls lýðsins, er honum hafði svo svarað:
Reykjargjörð sú, er þér gjörðuð í Júdaborgum og á Jerúsalem-strætum, þér og feður yðar, konungar yðar og höfðingjar og landslýðurinn, — hvort mintist Drottinn hennar ekki og kom hún honum ekki í hug?
Og Drottinn gat ekki lengur þolað það vegna vonzku verka yðvarra, vegna svívirðinga þeirra, er þér frömduð. Og þannig varð land yðar að auðn og skelfing og formæling, íbúalaust, svo sem það enn er,
sakir þess að þér færðuð reykelsisfórnir og syndguðuð gegn Drottni og hlýdduð ekki skipun Drottins og fóruð ekki eftir lögmáli hans, setningum og boðorðum, fyrir því kom þessi ógæfa yfir yður, eins og nú er fram komið.
Og Jeremía sagði við allan lýðinn og við allar konurnar: Heyrið orð Drottins, allir þér Júdamenn, sem í Egiptalandi eruð!
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Þér konur, — þér hafið talað það með munni yðar og framkvæmt það með höndum yðar — þar sem þér segið: vér viljum halda heit vor, er vér höfum gjört, að færa himnadrotningunni reykelsisfórnir og dreypifórnir!« þá efnið heit yðar og haldið heit yðar.
Heyrið því orð Drottins, allir Júdamenn, þér sem í Egiptalandi búið: Sjá, eg sver við mitt mikla nafn, segir Drottinn: Nafn mitt skal eigi framar nefnt verða af nokkurs Júdamanns munni í öllu Egiptalandi, að hann segi: »Svo sannarlega sem Drottinn Guð lifir!«
Sjá, eg vaki yfir þeim til óhamingju og eigi til hamingju, og allir Júdamenn, sem í Egiptalandi eru, skulu farast fyrir sverði og af hungri, unz þeir eru gjöreyddir.
En þeir, sem komast undan sverðinu, skulu hverfa aftur frá Egiptalandi til Júdalands, en aðeins fáir menn. Og allar Júda-leifar, þeir er komnir eru til Egiptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar, skulu komast að raun um, hvers orð rætist, mitt eða þeirra!
Og hafið þetta til marks — segir Drottinn — um að eg mun hegna yður á þessum stað, til þess að þér komist að raun um, að ógnanir mínar til yðar um óhamingju muni rætast:
Svo segir Drottinn: Sjá, eg sel Faraó Hofra, Egiptalands konung, á vald óvinum hans og á vald þeirra, sem sækjast eftir lífi hans, eins og eg seldi Zedekía Júdakonung á vald Nebúkadrezars Babel-konungs, er var óvinur hans og sóttist eftir lífi hans.