Gamla testamentiðSpámennirnir
En er Jeremía hafði lokið að mæla til alls lýðsins öll orð Drottins, Guðs þeirra, þau er Drottinn, Guð þeirra, hafði sent hann með til þeirra — öll þessi orð,
þá sagði Asarja Hósajason og Jóhanan Kareason og allir ofstopafullu mennirnir — þeir sögðu við Jeremía: Þú talar lygi! Drottinn, Guð vor, hefir eigi sent þig og sagt: þér skuluð eigi fara til Egiptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar!«
heldur egnir Barúk Neríason þig upp á móti oss, til þess að selja oss á vald Kaldeum, að þeir drepi oss eða herleiði oss til Babel.
Og ekki hlýddi Jóhanan Kareason og allir hershöfðingjarnir og allur lýðurinn skipun Drottins, að vera kyrrir í Júdalandi,
heldur tóku þeir Jóhanan Kareason og allir hershöfðingjarnir allar Júda-leifar, er aftur voru heim komnar frá öllum þeim þjóðum, þangað sem þeir höfðu verið brott reknir, til þess að dveljast í Júdalandi,
menn og konur og börn og konungsdæturnar og allar þær sálir, sem Nebúsaradan tifvarðarforingi hafði skilið eftir hjá Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, svo og Jeremía spámann og Barúk Neríason,
og fóru til Egiptalands, því að þeir hlýddu ekki skipun Drottins; og þeir fóru til Tahpanhes.
Og orð Drottins kom til Jeremía í Tahpanhes, svo hljóðandi: Tak þér í hönd stóra steina og graf þá í steinlími niður í steinhlaðið, sem er úti fyrir dyrum hallar Faraós í Tahpanhes, í viðurvist júdverskra manna
tími niður í steinhlaðið, sem er úti fyrir dyrum hallar Faraós í Tahpanhes, í viðurvist júdverskra manna
og seg við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Sjá, eg sendi og læt sækja Nebúkadrezar Babel-konung, þjón minn, og reisi hásæti hans yfir þessum steini, er eg hefi grafið niður, og hann skal breiða hásætisdúk sinn yfir þá.
Og hann mun koma og ljósta Egiptaland: hann mun framselja dauðanum þann, sem dauða er ætlaður, herleiðingunni þann, sem Íferleiðing er ætlaður, og sverðinu þann, sem sverði er ætlaður!
Og eg mun leggja eld í musteri guða Egiptalands, og hann mun brenna þau til ösku og flytja burt guði þeirra, og hann mun vefja um sig Egiptalandi, eins og hirðir vefur um sig skikkju sinni. Síðan mun hann fara þaðan óáreittur.
Og hann mun brjóta sundur súlurnar í Betsemes í Egiptalandi og brenna musteri guða Egiptalands í eldi.