Jeremíabók 42Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 42

Og allir hershöfðingjarnir og Jóhanan Kareason og Ásarja Hósajason og allur lýðurinn, bæði smáir og stórir, komu

og sögðu við Jeremía spámann: Veit oss auðmjúka bæn vora og hið þú til Drottins, Guðs þíns, fyrir oss, fyrir öllum þessum leifum — því að láir erum vér eftir orðnir af mörgum, eins og þú sjálfur sér á oss, —

og Drottinn, Guð þinn, virðist að gjöra oss kunnan þann veg, er vér eigum að fara og það, sem vér eigum að gjöra.

En Jeremía spámaður sagði við þá: Gott og vel! Eg skal biðja til Drottins, Guðs yðar, samkvæmt tilmælum yðar, og alt það, er Drottinn svarar yður, það skal eg segja yður; engu skal eg leyna yður.

Og þeir sögðu við Jeremía: Drottinn sé sannur og áreiðanlegur vottur gegn oss, ef vér förum eigi með öllu eftir þeim orðum, er Drottinn, Guð þinn, sendir þig með til vor;

hvort sem það verður gott eða út, skipun Drottins, Guðs vors, sem vér Sendum þig til, viljum vér hlýða, til þess að oss megi vel vegna, er vér hlýðum skipun Drottins, Guðs vors.

Og að tíu dögum liðnum kom orð Drottins til Jeremia,

og hann kallaði Jóhanan Kareason og alla hershöfðingjana saman, sem með honum voru, og allan lýðinn, bæði smáa og stóra,

og sagði við þá: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, er þér senduð mig til, að eg bæri fram fyrir hann auðmjúka bæn yðar:

Ef þér búið kyrrir í þessu landi, vil eg uppbyggja yður og ekki rífa niður, og eg vil gróðursetja yður og ekki uppræta; því að mig iðrar hins illa, er eg hefi gjört yður.

Óttist ekki Babel-konung, sem þér nú óttist; óttist hann ekki — segir Drottinn —, því að eg er með yður, til þess að hjálpa yður og til þess að frelsa yður undan hans valdi.

Og eg vil veita yður þá miskunn, að hann miskunni yður og láti yður snúa aftur heim í land yðar.

En tf þér segið: Vér viljum eigi búa kyrrir í þessu landi! og hlýðið eigi Skipun Drottins, Guðs yðar,

en segið: Nei, heldur viljum vér fara til Egiptalands, svo að vér þurfum ekki að sjá stríð, né heyra lúðurþyt, né hungra eftir brauði, og þar viljum vér setjast að!

þá heyrið nú þess vegna orð Drottins, þér Júda-leifar: Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Ef þér eruð alvarlega að hugsa um að fara til Egiptalands og komist þangað, til þess að dveljast þar sem útlendingar,

þá skal sverðið, sem þér nú óttist, ná yður þar í Egiptalandi, og hungrið, sem þér nú hræðist, skal elta yður til Egiptalands, og þar skuluð þér deyja.

Og allir þeir menn, sem eru að hugsa um að fara til Egiptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar, skulu deyja fyrir sverði og af hungri og drepsótt, og enginn þeirra skal sleppa við né komast undan ógæfu þeirri, er eg leiði yfir þá.

Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Eins og reiði minni og heift var úthelt yfir Jerúsalembúa, svo skal og heift minni úthelt verða yfir yður, er þér farið til Egiptalands, og þér skuluð verða að formæling, að skelfing, að bölbænar-formála og að háðung, og eigi framar sjá þennan stað.

Drottinn hefir svo til yðar talað, þér Júda-leifar: Farið eigi til Egiptalands! Vita skuluð þér, að nú hefi eg varað yður við;

því að þér dróguð sjálfa yður á tálar, er þér senduð mig til Drottins, Guðs yðar, og sögðuð: Bið til Drottins, Guðs vors, fyrir oss og seg oss nákvæmlega svo frá sem Drottinn, Guð vor, mælir, og vér skulum gjöra það!

Og nú hefi eg sagt yður frá því í dag, en þér hafið ekki hlýtt skipun Drottins, Guðs yðar, og það viðvíkjandi öllu því, er hann hefir sent mig með til yðar.

Og vita skuluð þér nú, að þér munuð deyja fyrir sverði, af hungri og drepsótt á þeim stað, þangað sem yður lystir að fara, til þess að dveljast þar sem útlendingar.