Gamla testamentiðSpámennirnir
Zedekía var tuttugu og eins árs að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir og var frá Líbna.
Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Jójakím.
Því að vegna reiði Drottins fór svo fyrir Jerúsalem og Júda, unz hann hafði burtsnarað þeim frá augliti sínu. En Zedekía brá trúnaði við Babel-konung.
Á níunda ríkisári hans, á tíunda degi hins tíunda mánaðar, kom Nebúkadrezar Babel-konungur með allan sinn her til Jerúsalem, og þeir settust um hana og reistu hervirki hringinn í kring um hana.
Varð borgin þannig í umsátri fram á ellefta ríkisár Zedekía konungs.
Í fjórða mánuðinum, á níunda degi mánaðarins, er hungrið tók að sverfa að borginni og landslýður var orðinn vistalaus,
þá var brotið skarð inn í borgina; og konungur og allir hermennirnir flýðu og fóru út úr borginni um nóttina gegnum hliðið milli beggja múranna, sem er hjá konungsgarðinum, þótt Kaldear umkringdu borgina, og héldu leiðina til sléttlendisins.
En her Kaldea veitti konungi eftirför og náði Zedekía á Jeríkó-völlum, er allur her hans hafði tvístrast burt frá honum.
Tóku þeir konung höndum og fluttu hann til Ribla í Hamat-héraði til Babel-konungs; hann kvað upp dóm hans.
Lét Babel-konungur drepa sonu Zedekía fyrir augum hans; sömuleiðis lét hann drepa alla höfðingja Júda í Ribla.
En Zedekía lét hann blinda og binda eirfjötrum. Síðan lét Babel-konungur flytja hann til Babel og setja í fangelsi og var hann þar til dauðadags.
En í fimta mánuði, á tíunda degi mánaðarins — það er á nítjánda ríkisári Nebúkadrezars Babel-konungs — kom Nebúsaradan lífvarðarforingi, vildarþjónn Babel-konungs, til Jerúsalem
og brendi musteri Drottins og konungshöllina og öll hús í Jerúsalem, og öll hús stórmennanna brendi hann í eldi.
En allur Kaldeaher, sá er var með lífvarðarforingjanum, reif niður alla múrana umhverfis Jerúsalem.
En leifar ljTðsins — þá er eftir voru í borginni — og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með Bahel-konungi, og þá sem eftir voru af iðnaðarmönnum, herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babel.
En af almúga landsins lét Nebúsaradan lífvarðarforingi nokkura verða eftir sem víngarðsmenn og akurkarla.
En eirsúlurnar, er voru hjá musteri Drottins, og undirstöðupallana og eirhafið, er voru í musteri Drottins, brutu Kaldear sundur og fluttu allan eirinn til Babel.
Og katlana, eldspaðana, skarbítana, fórnarskálarnar, bollana og öll eiráhöldin, er notuð voru við guðsþjónustuna, tóku þeir.
Þá tók og lífvarðarforinginn katlana, eldpönnurnar, fórnarskálarnar, pottana, ljósastikurnar, bollana, kerin — alt sem var af gulli og silfri;
súlurnar tvær, hafið og undirstöðupallana, er Salómó konungur hafði gjöra látið í musteri Drottins — eirinn úr öllum þessum áhöldum varð eigi veginn.
En hvað súlurnar snertir, þá var önnur súlan átján álnir á hæð, og tólf álna langan þráð þurfti til þess að ná utan um hana; en hún var fjögra fingra þykk, hol að innan.
En ofan á henni var eirhöfuð, og höfuðið var fimm álnir á hæð, og riðið net og granatepli voru umhverfis höfuðið, alt af eiri, og eins var á hinni súlunni.
En granateplin voru níutíu og sex, þau er út sneru; öll granateplin voru hundrað á riðna netinu alt um kring.
Og lífvarðarforinginn tók Seraja höfuðprest og Zefanía annan Prest og þröskuldsverðina þrjá.
Og úr borginni tók hann hirðmann einn, er skipaður var yfir hermennina, og sjö menn af þeim, er daglega litu auglit konungs, er fundust í borginni, og ritara hershöfðingjans, þess er bauð út landslýðnum, og sextíu manns af sveitafólki, því er fanst í borginni —
þá tók Nebúsaradan tifvarðarforingi og flutti þá til Ribla til Babel-konungs.
En Babel-konungur lét drepa þá í Ribla Í Hamathéraði. Þannig var Júda herleiddur úr landi sínu.
Þetta var mannfólkið, sem Nebúkadrezar herleiddi: sjöunda árið þrjú þúsund tuttugu og þrjá Júða;
átjánda ríkisár Nebúkadresars átta hundruð þrjátíu og tvær sálir úr Jerúsalem;
tuttugasta og þriðja ríkisár Nebúkadrezars herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi sjö hundruð fjörutíu og fimm sálir af Júðum. Alls voru það fjögur þúsund og sex hundruð sálir.
Og á þrítugasta og sjöunda útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, í tólfta mánuðinum, tuttugasta og fimta dag mánaðarins, náðaði EvílMeródak Babel-konungur, árið sem hann kom til ríkis, Jójakín Júdakonung og tók hann út úr dýflissunni.
Og hann talaði vingjarnlega við hann og setti stól hans ofar stólum hinna konunganna, sem hjá honum voru í Babel.
Og hann fór úr bandingja-fötum sínum og borðaði stöðuglega með honum, meðan hann lifði.
En uppeldi hans — hið stöðuga uppeldi — var honum veitt af Babel-konungi, það er hann þurfti á degi hverjum, alla æfi hans, alt þar til er hann dó.