Jeremíabók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 4

Jegar þú hverfur aftur, Ísrael — segir Drottinn —, hverfur aftur til mín og Flytur viðurstygðir þínar burt frá augliti mínu og ert ekki framar á sveimi,

þá munt þú sverja »svo sannarlega sem Drottinn lifir« í sannleika, réttvísi og einlægni, og þjóðir munu óska sér hans blessunar og hrósa sér af honum.

Já, svo segir Drottinn við Júdamenn og við Jerúsalem: Takið nýtt Land til yrkingar og sáið ekki ofan í þyrna!

Umskerið yður fyrir Drottni og takið burt yfirhúð hjarta yðvars, þér Júdamenn og Jerúsalembúar, svo að heiftarreiði mín brjótist ekki út, eins og eldur, og brenni svo, að eigi verði slökt, sakir vonzku verka yðvarra.

Kunngjörið í Júda og boðið í Jerúsalem og segið: Þeytið lúður í landinu! Kallið fullum rómi og segið: Safnist saman, og förum inn í víggirtu borgirnar!

Reisið upp hermerki í áttina til Zíonar, flýið undan, standið eigi við! Því að eg kem með ógæfu úr norðri og mikla eyðing.

Ljón er risið upp úr runni sínum, þjóða-eyðir lagður af stað, farinn að heiman, til þess að gjöra land þitt að auðn; borgir þínar verða gjöreyddar, mannlausar.

Gyrðið yður því hærusekk, harmið og kveinið, því að hin brennandi reiði Drottins hefir ekki snúið sér frá oss.

En á þeim degi — segir Drottinn — mun konungurinn og höfðingjarnir standa ráðalausir, prestarnir verða agndofa og spámennirnir skelfast.

Þá mælti eg: Æ, Drottinn Guð! Vissulega hefir þú illa svikið þessa þjóð og Jerúsalem, þá er þú sagðir: Yður mun heill hlotnast! þar sem sverðið gengur nú mjög nærri þeim.

Þá mun sagt verða um þessa þjóð og um Jerúsalem: Glóandi vindur á skóglausum hæðum í eyðimörkinni er atferli þjóðar minnar — sem hvorki verður notaður til að kasta úr eða hreinsa!

Ákafur vindur kemur í móti mér frá þeim; en nú vil eg einnig kveða upp dóma gegn þeim.

Sjá, eins og ský þýtur hann áfram og vagnar hans eru eins og vindbylur; hestar hans eru fljótari en ernir. Vei oss, það er úti um oss!

Þyg ilskuna af hjarta þínu, Jerúsalem, til þess að þú frelsist; hversu lengi eiga þínar syndsamlegu hugsanir að búa í brjósti þér?

Því heyr, menn segja tíðindi frá Dan og boða ógæfu frá Efraímfjöllum.

Segið þjóðunum frá því, kallið á þær gegn Jerúsalem! Umsátursmenn koma úr fjarlægu landi og hefja óp gegn Júdaborgum;

eins og akurverðir sitja þeir hringinn í kring um hana, af því að hún hefir þrjózkast í gegn mér, — segir Drottinn.

Atferli þitt og gjörðir þínar hafa bakað þér þetta; þetta hefir þú fyrir ilsku þína; já, beiskt er það, í að gengur mjög nærri þér.

ður mín! iður mín! Eg engist sundur og saman! Ó, veggir hjarta míns! Hjartað berst ákaft í brjósti mér, eg get ekki þagað! Því að önd mín heyrir lúðurhljóminn, bardagaópið.

Hrun á hrun ofan er boðað, já alt landið er eytt; skyndilega eru tjöld mín eydd, tjalddúkar mínir alt í einu.

Hversu lengi á eg að sjá gunnfána, hversu lengi á eg að heyra lúðurhljóm?

Já, fíflsk er þjóð mín, mig þekkja þeir ekki; heimskir synir eru þeir og vanhygnir eru þeir. Vitmenn eru þeir út að fremja, en gott að gjöra kunna þeir ekki.

Eg leit á jörðina, og sjá: hún var auð og tóm, og upp til himins, og ljós hans var sloknað.

Eg leit á fjöllin, og sjá: þau nötruðu, og allar hæðirnar, þær bifuðust.

Eg litaðist um, og sjá, þar var enginn maður, og allir fuglar himinsins voru flúnir.

Eg litaðist um og sjá: aldingarðurinn var orðinn að eyðimörk og allar borgir hans gjöreyddar, af völdum Drottinn, af völdum hans brennandi reiði.

Því að svo segir Drottinn: Auðn skal alt landið verða, en aleyðing á þeim vil eg ekki gjöra.

Vegna þessa syrgir jörðin og himininn uppi er dimmur, af því að eg hefi sagt það, og mig iðrar þess eigi, hefi ákveðið það og hætti ekki við það.

Fyrir harki riddaranna og bogmannanna er hver borg á flótta; menn skríða inn í runna og stíga upp á kletta; allar borgir eru yfirgefnar og enginn maður býr framar í þeim.

En þú, eyðingunni ofurseld, hvað ætlar þú að gjöra? Þótt þú klæðist skarlati, þótt þú skreytir þig með gull-skarti, þótt þú smyrjir augu þín blýlit, til einskis gjörir þú þig fagra; friðlarnir hafna þér, þeir sitja um líf þitt.

Já, hljóð heyri eg, eins og í jóðsjúkri konu, angistaróp, eins og í konu, sem er að ala fyrsta barnið, óp dótturinnar Zíonar, sem stendur á öndinni af kvölum og breiðir út hendurnar: ó, vei mér, því að örmagna hnígur sál mín fyrir morðingjum.