Gamla testamentiðSpámennirnir
Gangið fram og aftur um stræti Jerúsalem, litist um og rannsakið og leitið á torgunum, hvort þér finnið nokkurn mann, hvort þar sé nokkur, sem gjörir það sem rétt er og leitast við að sýna trúmensku, og mun eg fyrirgefa henni.
Og þótt þeir segi »svo sannarlega sem Drottinn lifir«, sverja þeir engu að síður meinsæri.
En, Drottinn, líta ekki augu þín á trúfesti? Þú laust þá, en þeir kendu ekkert til; þú eyddir þeim, en þeir vildu ekki taka aga. Þeir gjörðu andlit sín harðari en stein, þeir vildu ekki snúa við.
En eg hugsaði: Það eru aðeins hinir lítilmótlegu; þeir breyta heimskulega, af því að þeir þekkja ekki veg Drottins, réttindi Guðs síns.
Eg ætla að fara til stórmennanna og tala við þá; því að þeir þekkja veg Drottins, réttindi Guðs síns. En einmitt þeir höfðu allir saman brotið sundur okið og slitið af sér böndin.
Fyrir því drepur þá ljón úr skóginum, fyrir því eyðir þeim úlfurinn, sem hefst við á heiðunum, pardusdýrið situr um borgir þeirra, svo að hver sá, er út úr þeim fer, verður rifinn sundur; því að afbrot þeirra eru mörg, fráhvarfssyndir þeirra miklar.
Hví skyldi eg fyrirgefa þér? Börn þín hafa yfirgefið mig og svarið við þá, sem ekki eru guðir, og þótt eg mettaði þá, tóku þeir fram hjá og þyrptust að hóruhúsinu.
Eins og sællegir stóðhestar hlaupa þeir til og frá og hvía hver að annars konu.
Ætti eg ekki að hegna slíkum mönnum? — segir Drottinn — eða hefna mín á annari eins þjóð og þessari?
Stígið upp á múra hennar og rífið niður, en gjörið þó ekki aleyðing; takið burt vínviðargreinar hennar, því að þær heyra ekki Drottins.
Því að Ísraels hús og Júda hús hafa breytt mjög sviksamlega gegn mér — segir Drottinn.
Þeir hafa afneitað Drottinn og sagt: Það er ekki hann, og engin ógæfa mun yfir oss koma, sverð og hungur munum vér ekki sjá.
Spámennirnir munu verða að vindi, því að enginn talar fyrir munn þeirra; fari svo fyrir þeim sjálfum!
Fyrir því mælir Drottinn, Guð hersveitanna, svo: Af því að þér hafið mælt slíkum orðum, þá gjöri eg orð mín í munni þínum að eldi og þessa þjóð að eldiviði, til þess að hann eyði þeim.
Sjá, eg læt þjóð koma yfir yður úr fjarlægu landi, Ísraels hús — segir Drottinn —, það er óbilug þjóð, það er æfargömul þjóð; tungu þeirrar þjóðar þekkir þú ekki, og skilur ekki, hvað hún segir.
Örvamælir hennar er sem opin gröf, allir eru þeir kappar.
Hún mun eta uppskeru þína og neyzlukorn þitt; þeir munu eta sonu þína og dætur; hún mun eta sauði þína og naut; hún mun eta víntré þín og fíkjutré; hún mun brjóta niður með sverði hinar víggirtu borgir þínar, er þú reiðir þig á.
En þó mun eg ekki á þeim dögum — segir Drottinn — gjöra aleyðing á yður.
En ef þér þá segið: Fyrir hvað gjörir Drottinn, Guð vor, oss alt þetta? þá skalt þú segja við þá: Eins og þér hafið yfirgefið mig og þjónað öðrum guðum í yðar landi, svo skuluð þér verða annarra þrælar í landi, sem ekki er yðar land.
Kunngjörið það í húsi Jakobs og boðið það í Júda:
Heyr þetta, þú heimski og skilningslausi lýður, þér sem hafið augu, en sjáið ekki, þér sem hafið eyru, en heyrið ekki!
Mig viljið þér ekki óttast — segir Drottinn — eða skjálfa fyrir mínu augliti? fyrir mér, sem hefi sett hafinu fjörusandinn að takmarki, ævarandi girðingu, sem það kemst ekki yfir. Og þótt öldur þess komi æðandi, þá vinna þær ekki á, og þótt þær gnýi, þá komast þær ekki yfir hana.
En lýður þessi er þverúðarfullur og þrjózkur í hjarta; þeir hafa vikið af leið og horfið burt,
en sögðu ekki í hjarta sínu: Óttumst Drottinn, Guð vorn, sem gefur regnið, haustregnið og vorregnið, í réttan tíma og viðheldur handa oss ákveðnum uppskeruvikum.
Misgjörðir yðar hafa fært alt þetta úr skorðum og syndir yðar hafa hrundið blessuninni burt frá yður.
Því að meðal lýðs míns eru óguðlegir menn; þeir liggja í fyrirsát, eins og þegar fuglarar húka; þeir leggja snörur, til þess að veiða menn.
Eins og fuglabúr full af fuglum, svo eru hús þeirra full af svikum; á þann hátt eru þeir orðnir miklir og auðugir.
Þeir eru orðnir feilir, það stirnir á þá. Þeir eru og fleytifullir af ilskutali; málefni munaðarleysingjans, það taka þeir ekki að sér, til þess að bera það fram til sigurs, og þeir reka ekki réltgr fátæklinganna.
Ætti eg ekki að hegna slíkum mönnum? — segir Drottinn — eða hefna mín á Annari eins þjóð og þessari?
Óttalegt og hryllilegt er það, sem við ber í landinu!
Spámennirnir kenna lygar og prestarnir drotna eftir tilsögn þeirra og þjóð minni þykir fara vel á því. En hvað ætlið þér að gjöra, þegar að skuldadögunum kemur?